Tíðarfar í júlí - stutt
Bráðabirgðayfirlit á síðasta degi mánaðarins
Júlímánuður var mjög kaldur víðast hvar á landinu. Sérlega kalt var norðaustan- og austanlands, en hiti nærri meðallagi suðvestanlands. Óvenjuþurrt var um landið norðvestanvert.
Meðalhiti í Reykjavík var 11,4 stig og er það 0,8 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990, en -0,9 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 8,4 stig, -2,1 stigi undir meðallagi áranna 1961 til 1990 en -3,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Þetta er kaldasti júlímánuður á Akureyri síðan 1993.
Sérlega þurrt var um landið norðvestanvert. Úrkoma í Stykkishólmi mældist ekki nema 5,1 mm. Er það aðeins 12 prósent af meðallagi og hið minnsta í júlí síðan 1939, litlu meiri úrkoma mældist þó í júlí 1974. Í Reykjavík mældist úrkoman 34,2 mm og er það um tveir þriðju hlutar meðalúrkomu. Á Akureyri var úrkoman í meðallagi, mældist 32,4 mm.
Sólskinsstundir voru fleiri en í meðalári í Reykjavík.
Ítarlegra yfirlits um veður í júlí 2015 er að vænta á þriðjudag eða miðvikudag eftir verslunarmannahelgi.