Skaftárhlaup er hafið
Viðvörun vegna vatnavár
Rennsli Skaftár við Sveinstind hefur verið að aukast síðasta sólarhring* og rafleiðni hefur einnig aukist. Þessar athuganir þýða að Skaftárhlaup er mjög líklega hafið. Rennslið við Sveinstind er nú um 150 m³/s. Hlaupið kemur líklegast úr vestari Skaftárkatlinum, sem síðast hljóp úr í janúar 2014. Það fæst ekki staðfest fyrr en með sjónrænni athugun úr flugi yfir katlana.
Möguleg vá
Upplýsa þarf almenning og erlenda ferðamenn um mögulega náttúruvá:
- Næstu daga munu flóðaðstæður ríkja við bakka Skaftár. Mögulegt er að Skaftá flæði yfir vegi sem liggja nærri árbökkum.
- Brennisteinsvetni berst með hlaupvatninu þegar það kemur undan jökli. Styrkur þess er þá svo mikill að það getur skaðað slímhúð í augum og öndunarvegi. Ferðafólki er því eindregið ráðlagt að halda sig fjarri jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.
- Sprungur munu myndast mjög hratt í kringum ketilinn, því ætti ferðafólk á Vatnajökli að halda sig fjarri kötlunum, sem og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls þar sem hlaupvatn gæti brotið sér leið upp á yfirborðið.
Bakgrunnur
Upptök hlaupa í Skaftá eru undir tveimur jarðhitakötlum í Vatnajökli. Þegar hleypur úr þeim rennur vatnið fyrst um 40 km undir jöklinum og síðan 20 km eftir farvegi Skaftár áður en það kemur að fyrsta vatnshæðarmæli, sem er viðvörunarmælir við Sveinstind.
Söfnunarhraði í katlana er nokkuð jafn, því er langur tími á milli flóða jafnan ávísun á stór flóð. Hlaup úr eystri katlinum eru jafnan stærri en þau sem koma úr vestari katlinum.
Úr hvorum katli hleypur að jafnaði á tveggja ára fresti. Hámarksrennsli í hlaupum úr vestrikatlinum hefur mest orðið um 900 m³/s, en venjulega á bilinu frá 200 til 700 m³/s. Vatn tekur nokkurn tíma að ná niður að þjóðvegi, en það mun flæða út á hraunið neðan Skálarheiðar. Útbreiðsla þess nær þó ekki hámarki fyrr en nokkru eftir að það tekur að draga úr rennsli við Sveinstind.
Nánar um viðbrögð
Nánari upplýsingar er að finna í eftirfarandi greinargerð Veðurstofunnar: Handbók um Skaftárhlaup. Viðbragðsáætlun (pdf-útgáfa; 9.4 Mb).
* Viðvörun útgefin 17.6.2015 kl. 16:00. Vatnavársérfræðingar: Hilmar Björn Hróðmarsson og Gunnar Sigurðsson. Starfsmenn Veðurstofu fylgjast náið með þróuninni næstu sólarhringa.