Tíðarfar í febrúar 2015
Stutt yfirlit
Mánuðurinn var kaldur miðað við það sem algengast hefur verið í febrúar á seinni árum og var hitinn undir meðallagi síðustu tíu ára alls staðar á landinu, og undir meðallagi áranna 1961 til 1990 um landið sunnan- og suðvestanvert og víða vestanlands. Úrkomusamt var um nær allt land. Umhleypingasamt var og veðurlag nokkuð stórgert og meðalvindhraði óvenjuhár. Oft urðu samgöngutruflanir vegna hríðarbylja, einkum á fjallvegum. Skaðar urðu vegna flóða í hlýindum fyrir miðjan mánuð.
Hiti
Mánaðarmeðalhitinn í Reykjavík mældist -0,1 stig, -0,5 stigum undir meðallagi áranna 1961 til 1990 en -1,7 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Þetta er kaldasti febrúar í Reykjavík frá 2008 að telja. Á Akureyri var mánaðarmeðalhitinn -0,6 stig, 0,9 stigum yfir meðallagi 1961 til 1990, en -0,5 undir meðallagi síðustu tíu ára.
Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.
stöð | hiti | vik 1961-1990 | röð | af | vik 2005 til 2014 |
Reykjavík | -0,1 | -0,5 | 68 | 145 | -1,7 |
Stykkishólmur | -0,4 | 0,3 | 64 | 170 | -1,2 |
Bolungarvík | -1,5 | -0,5 | 65 | 118 | -1,6 |
Grímsey | -0,4 | 0,5 | 64 | 142 | -1,0 |
Akureyri | -0,6 | 0,9 | 46 | 134 | -0,5 |
Egilsstaðir | -0,5 | 1,4 | 22 | 61 | 0,0 |
Dalatangi | 1,7 | 1,1 | 21 | 77 | -0,2 |
Teigarhorn | 0,8 | 0,5 | 50 | 143 | -0,7 |
Höfn í Hornaf. | 1,3 | 0,8 | -0,6 | ||
Stórhöfði | 1,0 | -1,0 | 82 | 139 | -1,9 |
Hveravellir | -5,9 | 0,0 | 27 | -0,4 | |
Árnes | -1,6 | -0,5 | 63 | 136 | -1,8 |
Meðalhiti og vik á nokkrum stöðvum
Að tiltölu var hlýjast um landið austanvert en kaldast vestast á landinu og sums staðar við suðurströndina. Vik frá meðallagi síðustu tíu ára var minnst á Egilsstöðum, -0,0 stig, en mest á Hornbjargsvita, -2,3 stig.
Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Surtsey, 2,3 stig, en lægstur á Þverfjalli, -7,3 stig. Lægstur var meðalhitinn í byggð í Svartárkoti, -4,1 stig.
Landsmeðalhiti í byggð var undir frostmarki 17 daga mánaðarins.
Hæsti hiti mánaðarins mældist 17,4°C á Dalatanga þann 8. Hæsti hiti á mannaðri stöð mældist á sama stað daginn eftir, 16,8 °C. Lægsti hiti á landinu mældist -25,8 stig á Brúarjökli þann 21. Lægsti hiti í byggð mældist -24,1 stig í Svartárkoti þann 21. Lægsti hiti á mannaðri veðurstöð mældist -20,2 stig á Grímsstöðum á Fjöllum þann 22.
Fáein landsdægurmet voru sett í mánuðinum. Frostið þann 21. á Brúarjökli, -25,8 stig, er það mesta sem mælst hefur á landinu þennan almanaksdag, eldra met var sett í Möðrudal 1986 og var -24,0 stig. Þrjú ný landshámarksdægurmet voru sett í hlýindunum í fyrri hluta mánaðarins. Þann 5. mældist hámarkshiti á Eskifirði 13,8 stig, eldra met var 13,5 stig, frá árinu 2006. Þann 8. mældist hámarkshiti á sjálfvirku stöðinni á Dalatanga 17,4 stig, eldra met var 17,0 stig, sett á sama stað 1960. Þann 9. var hámarkshiti á mönnuðu stöðinni á Dalatanga 16,8 stig og sló út eldra dægurmet, 14,0 stig, sem sett var á Seyðisfirði 1983.
Úrkoma
Úrkomusamt var um mestallt land.
Úrkoma í Reykjavík mældist 93,2 mm og er það nærri 30 prósent umfram meðallag. Á Akureyri mældist úrkoman 56,7 mm, eða 33 prósent umfram meðallag. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 130 mm sem er 88 prósent umfram meðallag og það mesta í febrúar síðan 2004. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman 163,0 mm. Að tiltölu var úrkoman mest á Vestfjörðum, í Bolungarvík mældist hún 313 mm og er það mun meira en mest hefur þar mælst í febrúar áður.
Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 16 í Reykjavík og er það 3 fleiri en í meðalári. Á Akureyri voru slíkir dagar 13, 4 fleiri en að meðallagi.
Sólskinsstundafjöldi
Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 34,3 og er það 18 stundum undir meðallagi 1961 til 1990 og 32 stundum undir meðallagi síðustu tíu ára. Sólskinsstundir hafa ekki mælst jafnfáar í febrúar í Reykjavík síðan 1993, en voru þó nærri því eins fáar 2012 og 2005. Sólskinsstundir á Akureyri mældust 28,7 og er það 8 stundum undir meðallagi áranna 1961 til 1990.
Snjólag
Snjór var var lengst af ekki mikill, einna mestur þó um miðbik Norðurlands og einnig á Vestfjörðum síðari hluta mánaðarins.
Alhvítir dagar í Reykjavík voru 10. Að meðaltali 1971 til 2000 var alhvítt 13 daga í febrúar. Alhvítt var 16 daga á Akureyri, það er 5 dögum færra en í meðalfebrúar.
Samgöngur riðluðust nokkuð á vegum úti í hríðarveðrum í mánuðinum.
Vindhraði og loftþrýstingur
Meðalvindhraði var óvenjumikill, 1,5 m/s ofan við meðallag. Þetta er mesti meðalvindhraði í febrúar frá 1989 að telja, en var reyndar litlu minni í febrúar í fyrra.
Vindáttir voru óstöðugar, suðlægar og vestlægar áttir voru þó ríkjandi fyrstu 11 dagana. Stormasamt var með köflum, einna hvössust var sunnan- og vestanáttasyrpa dagana 6. til 10., landsynningsveður þann 14., austan- og norðaustanillviðri 22. og 23. og austan- og suðaustanveður þann 25. Síðasttöldu tvö veðrin voru þau útbreiddustu. Nokkrar samgöngutruflanir urðu fleiri daga.
Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 994,9 hPa og er það -7,7 hPa undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Lægstur mældist þrýstingurinn á Eyrarbakka þann 26., 948,6 hPa. Þetta er lægsti þrýstingur sem mælst hefur í febrúar hér á landi síðan 2002. Hæstur þrýstingur í mánuðinum mældist 1035,4 hPa, í Önundarhorni þann 7.
Fyrstu tveir mánuðir ársins 2015
Meðalhiti í Reykjavík fyrstu tvo mánuði ársins er -0,2 stig, -0,1 stigi undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Meðalhiti fyrstu tveggja mánaða ársins 2008 var sá sami í Reykjavík og nú. Á Akureyri var meðalhiti janúar og febrúar nú -0,9 stig, +0,9 stigum yfir meðallagi sömu mánaða 1961 til 1990. Janúar og febrúar 2010 voru kaldari á Akureyri en nú.
Úrkoma í Reykjavík í janúar og febrúar mældist samtals 220,5 mm og er það um 50 prósent umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Úrkoma var síðast meiri en þetta sömu mánuði 2013. Á Akureyri mældist úrkoman á sama tíma 127,2 mm eða 30 prósent umfram meðallag áranna 1961 til 1990.
Skjöl fyrir febrúar
Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í febrúar 2015 (textaskjal).
Þessa grein er einnig hægt að sækja eða lesa sem pdf-skjal, Tíðarfar í febrúar 2015 (0,3 Mb)
Daglegt yfirlit mánaðarins á fjórum ákveðnum veðurstöðvum má sækja í sérstaka töflu.