Fréttir
Bárðarbunga 1996. Grímsvötn fjær.

Enn mikil virkni í norðvestanverðum Vatnajökli

18.8.2014

10:56 Enn er mikil virkni í norðvestanverðum Vatnajökli. Frá miðnætti hafa mælst um 250 jarðskjálftar í sjálfvirka kerfinu, flestir á því svæði.

Virknin er mest austan við Bárðarbungu og við jökuljaðar Dyngjujökuls í grennd við Kistufell.

Klukkan 02:37 (18. ágúst) varð skjálfti við Kistufell, 3,7 að stærð, og er það stærsti skjálftinn sem orðið hefur í þessari hrinu hingað til. Tvær tilkynningar bárust frá Akureyri og ein úr Hafnarfirði um að skjálftinn hefði fundist. Engin merki sjást, enn sem komið er, um gos- eða hlaupóróa .

Á vefnum er kort sem sýnir virkni í Vatnajökli síðustu 48 tíma (óyfirfarnar frumniðurstöður) en myndin hér undir sýnir þá skjálfta sem höfðu verið yfirfarnir á miðnætti aðfaranótt 18. ágúst 2014:






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica