Fréttir
Veðurstofan í vísindakaffi
Á Súfistanum við Laugaveg
Vísindakaffi á vegum Vísindavöku verður haldið á Súfistanum í Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg miðvikudaginn 26. september kl. 20.
Þorsteinn Þorsteinsson jöklafræðingur á Veðurstofu Íslands fjallar um jöklana sem þekja tíunda hluta landsins og hafa veruleg áhrif á náttúrufar á Íslandi. Þeir geyma mikinn vatnsforða sem fer rýrnandi með hlýnandi loftslagi. Spurningarnar sem velt verður upp eru eftirfarandi:
- Hve mikil var leysingin á jöklum landsins í sumar?
- Hvert er áætlað framlag jöklaleysingar á Íslandi til hækkunar sjávarborðs á þessari öld?
- Hverjar verða afleiðingar þessara breytinga fyrir vatnsorkunýtingu og samgöngur?
- Hvernig geta rannsóknir á Íslandi gagnast könnun Mars og ístungla sólkerfisins?