Fréttir
Sumarþing Veðurfræðifélagsins 2011
Sumarþing Veðurfræðifélagsins verður haldið næstkomandi mánudag 6. júní 2011 í Orkugarði að Grensásvegi 9. Þingið og Veðurfræðifélagið eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari. Að þessu sinni fjallar fyrri hluti erindanna um greiningar á veðurfari og aðferð til reikninga á staðbundnu veðri. Seinni hluti erindanna snýr að eldgosunum í Grímsvötnum 2011 og Eyjafjallajökli.
Dagskrá þingsins
- 13:00 – Inngangur
- 13:05 – Trausti Jónsson: Árið 2010: Hvar er það í myndinni?
- 13:20 – Guðrún Nína Petersen: Vindar á Grænlandssundi
- 13:35 – Ólafur Rögnvaldsson: WRFLES
- 13:50 – Trausti Jónsson: Þurrkarnir 2009 til 2010 í Reykjavík.
- 14:05 – Halldór Björnsson og Sindri Magnússon: Dýrasti vindsniðsmælir sögunnar – Vindsnið reiknuð með mekki Eyjafjallajökulgossins
14:20 – Kaffihlé
- 14:45 – Halldór Björnsson – Grímsvötn 2011: Frá veðurfræðilegu sjónarhorni
- 15:00 - Elín Björk Jónasdóttir – Grímsvatnagosið 2011: Á vaktinni
- 15:15 – Þórður Arason – Eldingar í Grímsvatnagosi 2011
- 15:30 – Sibylle von Löwen – Grímsvötn 2011: Öskumælingar
- 15:45 – Umræður
16:00 – Þingi slitið
Frekari upplýsingar og stutt ágrip hluta erindanna eru á vefsíðu Veðurfræðifélagsins.