Sumarþing Veðurfræðifélagsins 2010
Sumarþing Veðurfræðifélagsins verður haldið í Víðgelmi að Orkugarði, Grensásvegi 9, þriðjudaginn 15. júní 2010. Þingið er ókeypis og opið öllum er áhuga hafa á veðri og veðurfari.
Að þessu sinni skipast efnistök þingsins að mestu í tvo flokka, annars vegar efni sem tengjast veðurspám og hinsvegar tölfræðilegri úttekt á veðurfari.
Það er sönn ánægja að bjóða upp á erlendan gestafyrirlesara á sumarþinginu, dr. Kevin R. Wood, sem starfar hjá Joint Institute for the Study of the Atmosphere and Ocean (JISAO) sem er hluti af bandarísku haf- og loftrannsóknastofnuninni NOAA. Hann mun setja þingið með erindi er fjallar um langtímaveðurlag við Norður-Atlantshaf.
Dagskrá þingsins
- 13:00 - Inngangur
- 13:05 - Kevin Wood: Langtímaveðurlag við N-Atlantshaf (flutt á ensku)
- 13:40 - Trausti Jónsson: Vik frá landsjöfnuðum hita. Árstíðasveifla.
- 13:55 - Óli Páll Geirsson: Hágildi í úrkomu
- 14:10 - Birgir Hrafnkelsson: Hágildi/lággildi í hitastigi
14:25 - Kaffihlé
- 14:50 - Einar Sveinbjörnsson: Sumarspár - má eitthvað gagn hafa af þeim?
- 15:05 - Kristján Jónasson: Ný langtímaspá fyrir öldina
- 15:20 - Marius 0. Jonassen: On the possibility of improving a numerical weather prediction (NWP) system with input from an Unmanned Aircraft System (UAS)
- 15:35 - Hálfdán Ágústsson: Hléiður - kynngi Snæfellsjökuls yfir Reykjavík
- 15:50 - Guðrún Nína Petersen: Sögur að handan - fréttir af norræna veðurþinginu 2010
16:00 - Þingi slitið
Á vef Veðurfræðifélagsins má lesa ágrip nokkurra erinda á komandi sumarþingi.