Desember 2008
Stutt tíðarfarsyfirlit
Tíðarfar var lengst af gott í desember þó snjór væri meiri á jörðu en á sama tíma undanfarin ár.
Meðalhiti í Reykjavík var 1,1 stig eða 1,3 stig yfir meðallagi. Á Akureyri var meðalhitinn -0,3 stig og er það 1,6 stigum yfir meðallagi.
stöð | hiti | frávik | röð | af |
Reykjavík | 1,1 | 1,3 | 41 | 143 |
Stykkishólmur | 0,8 | 1,6 | 33 | 165 |
Bolungarvík | 0,5 | 1,7 | 28 | 112 |
Akureyri | -0,3 | 1,6 | 37 | 128 |
Egilsstaðir | -1,8 | 0,4 | 33 | 61 |
Dalatangi | 2,4 | 1,8 | 17 | 71 |
Höfn í Hornaf. | 0,5 | 0,1 | 19 | 44 |
Stórhöfði | 2,5 | 1,1 | 40 | 132 |
Hveravellir | -4,7 | 1,6 | 14 | 43 |
Meðalhiti og vik frá meðaltalinu 1961-1990.
Úrkoma í Reykjavík mældist 124 mm og er það 57% umfram meðallag. Á Akureyri mældist úrkoman 43 mm og er það um 20% undir meðallagi. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman 145 mm en það er 23% umfram meðallag.
Sólskinsstundir mældust 7 í Reykjavík og er það 5 stundum minna en í meðalárferði. Ekkert sólskin mældist á Akureyri eins og langoftast í desember.
Hæsti hiti mánaðarins mældist 14,4 stig á sjálfvirku stöðinni á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði þann 10. og morguninn eftir hafði hitinn um nóttina farið í 13,6 stig á mönnuðu stöðinni á sama stað. Það varð hæsti hiti á mannaðri stöð í mánuðinum. Lægsti hiti mánaðarins mældist á sjálfvirku stöðinni á Neslandatanga við Mývatn þann 14., -26,3 stig. Sama dag fór hiti niður í -22,7 stig á Grímsstöðum á Fjöllum. Það var lægsti hiti á mannaðri stöð í mánuðinum.