Fréttir
Jarðskjálftayfirlit vikuna 9. - 15. júlí 2007
Jarðskjálftayfirlit vikuna 9. - 15. júlí 2007

Jarðskjálftayfirlit vikuna 9.-15. júlí 2007

17.7.2007

Í þessari viku voru staðsettir 266 jarðskjálftar. Um 44% þeirra urðu við Upptyppinga á norðaustur hálendinu. Skjálftarnir sem mældust voru að stærð frá -0,2 til 3,7. Sá stærsti varð kl. 07:42:14, þann 09. júlí með upptök við Krísuvík á Reykjanesskaga. Skjálftinn fannst í Reykjanesbæ.

Að auki mældust 5 sprengingar eða líklegar sprengingar, við hin ýmsu vinnusvæði um allt land.

Eftir þessa viku er heildarfjöldi jarðskjálfta sem hafa mælst með SIL jarðskjálftamælakerfinn á þessu ári orðinn 7.450.

Nánari upplýsingar í vikuyfirliti





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica