Metfjöldi viðvarana að sumarlagi
Frá því að nýtt viðvörunarkerfi var tekið í
notkun á Veðurstofu Íslands hafa aldrei verið gefnar út jafn margar viðvaranir
að sumarlagi og í ár eða 50 talsins. Af þeim voru flestar gefnar út vegna
vindhraða eða 32. Viðvaranir vegna mikillar rigningar voru 15 en þrjár
viðvaranir voru gefnar út vegna snjókomu. Sumarið fór vel af stað og voru
einungis 5 viðvaranir gefnar út í júní og voru þær allar vegna vinds.
Júlí
mánuður var aftur á móti viðburðaríkari eða umhleypingarsamari með 27 útgefnum
viðvörunum, 19 vegna vinds en 8 vegna rigningar eða snjókomu. Veðrið var heldur
rólegra í ágúst en þá voru 18 viðvaranir gefnar út, meirihluti þeirra eða 10
voru vegna rigningar. Engin viðvörun var gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið í
sumar, en annars dreifðust þær nokkuð jafnt milli spásvæða. Flestar viðvaranir
voru gefnar út fyrir Suðurland (7), en fæstar fyrir Breiðafjörð (2).
Sumarauki, en tími haustlægðanna er að renna upp
Haustið
fer vel af stað með dálitlum sumarauka, en það segir þó ekkert til með
framhaldið og því rétt að byrja að ganga frá sumarhúsgögnum, trampolínum og
öðru því sem getur fokið áður en fyrstu haustlægðirnar mæta.
Gular viðvaranir vegna vinds gefnar út 16. júní í sumar fyrir þrjú spásvæði, Suðurland, Suðausturland og Austfirði. Flestar viðvaranir í sumar voru gefnar út fyrir Suðurland.