Magn gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti jarðar hefur aldrei mælst meira
Ný skýrsla Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar kom út í dag
Magn gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti jarðar hefur aldrei mælst meira en á síðasta ári. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar sem kom út í dag. Það virðist ekkert lát á þessari aukningu sem veldur loftslagsbreytingum, hækkun yfirborðs sjávar, súrnun sjávar og afbrigðilegu veðurfari.
Magn þriggja gastegunda, koltvíoxíðs (CO2), metans og nituroxíð, hefur aldrei mælst meira en í fyrra. Magn koltvíoxíðs mældist nú 146% meira en fyrir iðnbyltingu 1750.
Petteri Taalas, aðalritari Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar, segir niðurstöður vísindamanna skýrar. „Ef við drögum ekki hratt úr magni gróðurhúsalofttegunda munu áhrif loftslagsbreytinga aukast enn frekar og valda óafturkræfum skaða. Tímaramminn sem við höfum til aðgerða þrengist stöðugt“.
„Síðast þegar að styrkur koltvíoxíðs í lofti var svipaður og núna, var fyrir 3-5 milljónum ára síðan. Þá var hitastig jarðar um 2-3 gráðum hærra en nú og yfirborð sjávar var 10-20 metrum hærra“, segir Petteri.
Nánar má lesa um skýrsluna á vef Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar .