Mælingar og boranir í Strandartindi á Seyðisfirði
Um og eftir verslunarmannahelgi fóru fram svokallaðar ERT-mælingar í Strandartindi á Seyðisfirði. Um er að ræða sérhæfðar leiðnimælingar sem gefa upplýsingar um aðstæður undir yfirborði. Veðurstofa Íslands stóð fyrir mælingunum og naut til þess aðstoðar svissneska fyrirtækisins Geotest AG.
Tilgangur mælinganna er að kanna hvort sífreri sé til staðar í urð sem er í um 700 m hæð í Strandartindi. Líklegt er talið að sumar af þeim skriðum sem fallið hafa niður í byggð neðan Strandartinds hafi átt upptök í urðinni. Getgátur hafa verið uppi um sífrera á þessu svæði, en þiðnandi sífreri í bröttum hlíðum getur í sumum tilfellum leitt til skriðufalla. Til þess að fá sem skýrasta mynd af eðli skriðuhættunnar á svæðinu er því mikilvægt að kanna hvort sífreri sé til staðar.
Niðurstöður ERT-mælinganna benda til þess að ekki sé um samfelldan sífrera að ræða í urðinni, sem eru jákvæðar niðurstöður. Aftur á móti útiloka þær ekki staðbundnar íslinsur á minni svæðum og mögulegt er talið að samfelldur sífreri hafi verið til staðar áður fyrr en að hann hafi þegar bráðnað að mestu.
Til þess að afla frekari upplýsinga verður einnig borað í urðina á tveimur stöðum þar sem niðurstöður ERT-mælinganna sýndu möguleika á staðbundnum sífrera. Köfunarþjónustan ehf., sem vinnur nú að framkvæmdum við snjóflóðagrindur í Drangagili í Neskaupstað, hefur tekið að sér borunina. Stefnt að því að þyrla flytji bor ásamt tilheyrandi búnaði og mannskap frá Neskaupstað til Seyðisfjarðar í dag ef aðstæður leyfa. Stefnt er að því að bora tvær holur, allt að 10 m djúpar, og koma fyrir kapli með hitanemum í hvorri þeirra.
Til samans munu ERT-mælingarnar og hitamælingarnar í borholunum gefa eins góða mynd af aðstæðum undir yfirborði og raunhæft er að fá. Hitamælingarnar þurfa að ná yfir að minnsta kosti heilan vetur til þess að hægt sé að byrja að draga ályktanir af þeim og oft er talað um tvö heil ár fyrir greiningar á sífrera.
Strandartindur fyrir ofan Seyðisfjörð. Urðin sem um ræðir er
fyrir miðri mynd. Mynd: Jón Kristinn Helgason

Daniel Ben-Yehoshua skriðusérfræðingur á Veðurstofunni við mælingar í urðinni í Strandartindi. Mynd: Jón Kristinn Helgason




