Lokafundur EUROVOLC samstarfsverkefnisins
Ávinningur verkefnsins mikill þegar kemur að rannsóknum og vöktun eldstöðva
Lokafundur EUROVOLC samstarfsverkefnisins
fór fram dagana 16.-18. nóvember. Verkefnið, sem miðar að
samstarfi og samtengingu evrópskra eldfjallaeftirlits- og rannsóknarstofnanna
hóf göngu sína 1. febrúar 2018 og átti að standa yfir í 3 ár. Þegar ljóst var
að kórónuveirufaraldurinn myndi hafa mikil áhrif á verkefnið sökum ferðabanns
og/eða -takmarkana sótti verkefnisstjórn um 10 mánaða framlengingju sem
samþykkt var af Evrópusambandinu í desember 2020 og verkefnið því framlengt til
30. nóvember 2021. Framlengingin var afar mikilvæg, sér í lagi fyrir framkvæmd sérstakra
rannsóknarverkefna sem styrkt voru af EUROVOLC, en verkefnið bauð vísindamönnum
að sækja um aðgang að innviðum evrópsku eldfjallarannsóknarstofnanna. Slíkar eldfjallaeftirlitsstöðvar
eru meðal annars á Reunion-eyju í Indlandshafi og á
Gualdeloupe og Montserrat eyjum í Karíbahafi. Umsækjendur gátu sótt um að framkvæma
rannsóknir og fá aðgang að annars óaðgengilegum rannsóknarinnviðum og gögnum.
Framlengingin varð til þess að af 39 samþykktum rannsóknarverkefnum féllu
aðeins 3 niður.
Mæting var góð þrátt fyrir hertar aðgerðir sóttvarnaryfirvalda. Mynd: Hanna Blanck.
Verkefnið er Veðurstofunni mikilvægt
Í anda nýrra viðmiða í fundarhöldum vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins var mæting á lokafundinn tvíþætt og sótti helmingur þátttakenda fundinn í gegnum fjarfundarbúnað en aðrir gerðu sér ferð til Íslands. Alls sóttu um 70 manns fundinn. Við upphaf fundarins ávarpaði Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu Íslands fundargesti og undirstrikaði mikilvægi verkefna og samstarfs á borð við EUROVOLC og annarra verkefna eins og EPOS (European Plate Observing System) sem Veðurstofan hefur tekið virkan þátt í. Slík innviðaverkefni gegna mikilvægu hlutverki í uppbyggingu og eflingu innviða, auk þess að beina augum stjórnvalda að mikilvægi rannsókna af þessu tagi. Verkefni á borð við EUROVOLC hafa fjármagnað vöktun og rannsóknir á eldfjöllum um alla Evrópu og eru því gríðarlega mikilvæg fyrir alla virðiskeðjuna.
Ávinningur EUROVOLC, sem
Evrópusambandið styrkti um 5 milljónir evra og hvers heildarumfang er 6
milljónir evra, mælist í auknum afurðum af ýmsum gerðum eldfjallagagna og
-afurða, þróun aðferðafræði og hugbúnaðar, stöðlun og samþættingu bestu
starfsvenja (e. standard of best practice) og aukins samstarfs vísindamanna
ólíkra stofnanna á sviði eldfjallarannsókna og -vöktunar um alla Evrópu.
Framtíðarsýn eldfjallasamfélagsins rædd á fundinum
Að þessu sinni var áhersla
fundarins á þau fjögur þemu sem verkefnið byggðist upp á, fremur en að einblínt
væri á vinnu stakra verkþátta. Heildstæð niðurstaða verkefnisins innan þemanna: (1) ,,Community building“, (2) ,,Volcano-atmosphere
interaction“, (3) ,,Sub-surface processes“ og (4) ,,Volcanic
crisis preparedness and risk management“ var kynnt og framtíðarhorfur
ræddar. Þar sem verkefninu lýkur formlega þann 30. nóvember var fundurinn í
senn uppskeruhátíð í bland við umfjöllun um framtíðarsýn eldfjallasamfélagsins.
Á fundinum voru ennfremur flutt stutt erindi um eldfjallatengda atburði
víðsvegar um Evrópu þetta árið, s.s. um eldgos og óróa í Fagradalsfjalli, Etnu
og Vulcano á Ítalíu og La Palma á
Kanaríeyjum.
Kristín S. Vogfjörð (VÍ) og Giuseppe Puglisi (INGV) sameinuðu krafta sína þegar styrkumsóknin var skrifuð til Evrópusambandasins. Mynd: Hanna Blanck.
Formlegum fundi lauk á umræðum um næstu skref eldfjallasamfélagsins og var það einróma álit hópsins að afurðum verkefnisins yrði best komið innan rafrænna þjónusta EPOS samtakanna. Lokaorð fundarins áttu Giuseppe Puglisi, INGV (Instituto nazionale di geofisica e vulcanologia); Patrick Allard, stjórnarformaður alþjóðlega eldfjallarannsóknarsamfélagsins IAVCEI (International Association of Volcanology and Chemistry of the Earth's Interior), og Kristín S. Vogfjörð, Veðurstofu Íslands, sem leitt hefur verkefnið frá upphafi.
Hluti þátttakenda fór í
feltferð að gosstöðvunum á Reykjanesi. Þeir þátttakendur sem sáu sér
fært að heimsækja okkur á Íslandi fögnuðu saman í kvöldverði og botninn var sleginn með frábærri ferð til gosstöðvanna á
Fagradalsfjalli undir leiðsögn Freysteins Sigmundssonar (HÍ), Ármanns
Höskuldssonar (HÍ) og Söru Barsotti (VÍ). Hanna Blanck (VÍ) var til taks til að
svara spurningum um jarðskjálfta og Bergrún Óladóttir um gjósku. Á fjallinu
fundum við Björn Oddsson (Almannavarnir) sem fór yfir áskoranirnar sem hans
deild tókst á við þegar eldgos verður að helsta aðdráttarafli túrismans í
miðjum heimsfaraldri. Mynd: Ríkey Júlíusdóttir