Jöklar á Íslandi halda áfram að rýrna
Flestir jökulsporðar hörfa 2024–2025 samkvæmt mælingum sjálfboðaliða jöklarannsóknafélagsins. Breytingin er einna mest á stærri skriðjöklum Vatnajökuls, Langjökuls og Mýrdalsjökuls.
Gögnin benda jafnframt til þess að tímabili hægari rýrnunar, sem ríkti árin 2012–2020, sé lokið og jöklarnir tapi nú aftur massa jafn ört og á tímabilinu 1995–2011.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjasta fréttabréfi á vegum verkefnisins „Hörfandi jöklar: Lifandi kennslustofa í loftslagsbreytingum“ sem er samvinnuverkefni umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Vatnajökulsþjóðgarðs, Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Náttúrustofu Suðausturlands.
Jökulárið 2024–2025 var afkoma mæld á um 130 stöðum á jöklum landsins og reyndist jöklunum þungt í skauti. Lítil vetrarafkoma og mikil sumarleysing olli því að ársafkoman var mun neikvæðari en í meðalári. Þetta tap skýrist af óvenjulegum hlýindum að hausti og vetri, sem ollu því að úrkoma féll sem regn frekar en snjór, og af einu hlýjasta sumri frá upphafi mælinga.
Í fréttabréfinu er gerð nánari grein fyrir niðurstöðum mælinga á afkomu stærstu jöklanna þriggja, sýnd kort af yfirborðsskriðhraða jöklanna sem unnin hafa verið út frá gervitunglagögnum á síðastliðnum árum og sagðar fréttir af jökulhlaupum á árinu.




