Fréttir
Hluti hópsins í vettvangsferð á Langjökli.

Jöklafræðingar hittast á Íslandi

Árlegur fundur haldinn á slóðum Snorra í Reykholti

6.11.2019

Á dögunum héldu Veðurstofan, Jarðvísindastofnun Háskólans og Alþjóðlega Jöklarannsóknafélagið árvissa ráðstefnu jöklafræðinga og jarðvísindafólks á Norðurlöndunum í Reykholti. Framhaldsnemar og vísindamenn sýndu þar nýjustu niðurstöður rannsókna á jöklakortlagningu, hreyfingu jökla, jöklajarðfræði og náttúruvá sem tengist jöklabreytingum en einnig voru kynnt verkefni sem snúa að vísindamiðlun og hafa víðari skírskotun í samfélagslegu tilliti.


Þátttakendur heimsóttu náttúrulaugarnar við Deildartunguhver og íshellinn í Langjökli þar sem myndin var tekin.

Tveggja daga námskeið í Elmer/Ice líkanreikningum var haldið í Reykjavík á undan ráðstefnunni, fyrir nemendur og vísindamenn sem eru að taka sín fyrstu skref í jöklalíkanreikningum. Námskeiðið var styrkt af Háskóla Íslands, Veðurstofunni, CSC í Finnlandi og IGE í Grenoble. Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt á ráðstefnunni og styrktaraðilum, Landsvirkjun, Vegagerðinni og Vinum Vatnajökuls.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica