Jarðhræringarnar á Reykjanesskaga
Vísindaráð Almannavarna fundar í næstu viku
Samkvæmt nýjustu gögnum eru vísbendingar um að landris sé hafið að nýju við Þorbjörn. Þann 30. maí jókst jarðskjálftavirkni í nágrenni Grindavíkur og hafa um 700 skjálftar verið staðsettir þar síðan þá, aðallega smáskjálftar. Stærstu skjálftarnir sem mælst hafa í þessari hrinu voru 2,7 að stærð, dagana 30. maí og 2. júní.
Í byrjun apríl dró úr landrisi við Þorbjörn og um miðjan mánuðinn lauk þeirri landrishrinu. Á sama tíma dró verulega úr skjálftavirkni. Bent var á í frétt sem birtist á vef Veðurstofunnar 4. maí að miðað við þróun atburða síðustu mánuði yrði að gera ráð fyrir þeim möguleika að kvikuinnskot á Reykjanesskaga haldi áfram.
Vísindamenn á Veðurstofu Ísland ásamt vísindamönnum á Jarðvísindastofnun og ÍSOR hafa fylgst vel með þróun mála á Reykjanesskaga og safna og vinna úr gögnum. Vísindaráð Almannavarna mun koma saman miðvikudaginn 10. júní til að fara yfir gögn og leggja mat á stöðuna.
Óvissustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga er enn í gildi hjá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.