Íshellir í Hofsjökli – viðvörun
Í sjónvarpsfréttum að kvöldi 11. febrúar var fjallað um nýfundinn íshelli í Blágnípujökli, sem gengur suðvestur úr Hofsjökli. Framan við jökulinn eru nýleg merki umbrota sem þarna urðu haustið 2017. Lítið jökulhlaup hefur brotist undan jöklinum og skilið eftir jakadreif, sem nær nokkur hundruð metra fram fyrir jökuljaðarinn. Ekki sjást merki hlaupsins á vatnshæðarmælum eða skjálftamælum.
Hópur jeppamanna fór á staðinn 3. febrúar og gengu leiðangursmenn inn í botn íshellisins, sem er um 150 m langur. Þeir höfðu meðferðis gasmælitæki sem skráði styrk súrefnis, kolmónoxíðs, brennisteinsvetnis (H2S) og brennisteinsdíoxíðs (SO2). Brennisteinsfýla fannst í hellinum og innst í honum mældist styrkur H2S um 60 ppm. Slíkur styrkur getur valdið öndunarerfiðleikum og augnskemmdum ef dvalið er eina klukkustund eða lengur í svo menguðu lofti.
Þess ber einnig að geta að fyrir 15 árum sást ketill myndaður af jarðhita á svipuðum stað í jöklinum og var þá mjög sterk brennisteinslykt á svæðinu. Ekki er því hægt að útiloka að virknin í hellinum færist í aukana. Rétt er að benda á að ofan við 20 ppm styrk brennisteinsvetnis (H2S) hætta margir að finna lyktina af því og ef styrkurinn fer yfir 100 ppm er lífshætta á ferðum. Því er óráðlegt að fara inn í þennan helli nema hafa með sér gasmælitæki sem gefur til kynna hvort styrkur hættulegra gastegunda sé yfir viðmiðunarmörkum.
Auk hættu af eitruðum lofttegundum skal bent á að ísflekar virðast sums staðar hanga lausir í lofti hellisins og getur því verið hættulegt að fara þar um. Bent er á skýrslu á vef Vatnajökulsþjóðgarðs um sumar helstu hættur sem varast ber í íshellum
Fréttin hefur verið uppfærð.