Fréttir
  Fjórða samantektarskýrsla vísindanefndar kynnt á morgun
Fjórða samantektarskýrsla vísindanefndar um loftslagsbreytingar verður gefin út og kynnt miðvikudaginn 18. október í Grósku, Reykjavík. Kynningunni verður streymt beint og hefst hún kl. 8.30 og stendur til kl. 10.00. 
Dagskrá:
- Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpar fundinn.
 - Halldór Björnsson, formaður vísindanefndar um loftslagsbreytingar, kynnir helstu niðurstöður nefndarinnar.
 - Pallborðsumræður um eftirfarandi málefni í samhengi skýrslunnar:
 - Samfélag, menning, félagslegir innviðir, lýðheilsa og heilbrigðiskerfi, atvinnuvegir og byggðir innviðir.
 - Náttúrufar, lífríki á landi og ástand sjávar.
 - Áhætta og áhættustýring, náttúruvá og aðlögun að loftslagsbreytingum
 - Í pallborði sitja meðlimir vísindanefndar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ásamt fulltrúum hagaðila, þeim Ölmu Möller, Landlækni, Elvu Rakel Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Festu og Ólafi Árnasyni, forstjóra Skipulagsstofnunar.
 - Þórunn Wolfram Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Loftslagsráðs, stýrir pallborði. 
 




