Fjöldi viðvarana vegna veðurs í meðallagi veturinn 2022-2023
Útgefnar viðvaranir vegna veðurs síðastliðinn vetur voru
325 talsins og er sá fjöldi í meðallagi. Mun fleiri viðvaranir voru gefnar út
veturinn 2019 – 2020 og 2021 – 2022, en þá var fjöldi útgefinna viðvarana 439
og 426. Flestar viðvaranir voru gefnar út í febrúar, 16 appelsínugular og 64
gular samtals 80 viðvaranir sem eru tæplega þrjár viðvaranir á dag að
meðaltali.
Apríl mánuður var rólegastur, en þá voru einungis fimm gular
viðvaranir gefnar út. Fjórar rauðar viðvaranir voru gefnar út síðastliðinn
vetur, ein í september og þrjár í október.
Maí mánuður skar sig út þar sem 36 viðvaranir voru gefnar út. Þó að
jafnaði megi búast við rólegu veðri í maí hefur þessi staða komið upp áður
eftir að viðvaranakerfi Veðurstofunnar var tekið í notkun, en það var árið 2018
þegar 38 viðvaranir voru gefnar út.