Engin skýr merki um landris við Keili
Nýjustu gervitunglagögn úr Sentinel-1 af svæðinu við Keili sýna engin skýr merki um að kvika sé að brjóta sér leið til yfirborðs. Á nýjustu myndinni sem sýnir breytingar á svæðinu frá 23. september til 5. október sjást engin merki um breytingar á jarðskorpunni á slóðum skjálftahrinunnar sem hefur verið í gangi frá því í lok september. Það útilokar hins vegar ekki að kvika sé á hreyfingu á það miklu dýpi að það sæist ekki í gervitunglagögnum.
“Við höfum verið að keyra líkön út frá nýjustu jarðskjálfta- og landmælingagögnum og líkönin gefa til kynna að ef kvika er að safnast fyrir, þá er hún ekki í miklu magni og á talsverðu dýpi, eða meira dýpi en sást í aðdraganda gossins í mars”, segir Michelle Parks sem unnið hefur að greiningu gagnanna ásamt Vincent Drouin á Veðurstofu Íslands. “Ef kvika er að byggjast upp á meira en 5km dýpi, en skjálftavirknin í hrinunni er að megninu til á meira dýpi en það, þá sæist það ekki á gervitunglamyndum fyrr en talsvert meira magn hefur safnast fyrir. Því er nauðsynlegt að halda áfram að fylgjast náið með þróun virkninnar við Keili” segir Michelle.