Efling veðurathugana í Malaví með stuðningi Íslands
Verkefni um kerfisbundnar veðurathuganir var sett af stað í Malaví í febrúar með stuðningi íslenskra stjórnvalda. Verkefnið er á vegum fjármögnunarsjóðsins Systematic Observations Financing Facility (SOFF), sem íslensk stjórnvöld leggja fjármagn til. Að verkefninu koma einnig Veðurstofa Malaví og Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP), með tæknilegum stuðningi frá Veðurstofu Íslands, Veðurstofu Noregs og Alþjóðaveðurfræðistofnuninni.
Kerfisbundnar veðurathuganir geta skipt sköpum fyrir aðlögun að tíðari veðuröfgum og vaxandi álagi á samfélög vegna loftslagsbreytinga. SOFF-verkefnið í Malaví miðar að því að styrkja veðurathugunarkerfi landsins með uppsetningu og eflingu veðurstöðva og uppbyggingu þekkingar á rekstri innviða. Markmið verkefnisins er að efla upplýsta og markvissa ákvarðanatöku og bæta aðgengi að snemmbúnum veðurviðvörunum sem geta verndað mannslíf, lífsviðurværi og eignir um land allt. Þéttari veðurathuganir á svæðinu stuðla jafnframt að sterkum hnattrænum veðurspám, sem draga úr áhættu af völdum ófyrirsjáanlegs veðurfars á heimsvísu.
Verkefnið formlega sett af stað
Patricia Wiskes, ráðherra náttúruauðlinda Malaví, og Celeste Saulo, framkvæmdastjóri Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar, hleyptu framkvæmdafasa verkefnisins opinberlega af stað í Blantyre 11. febrúar og klipptu á borða því til staðfestingar. Jórunn Harðardóttir, rannsóknastjóri Veðurstofu Íslands, og Erla Hlín Hjálmarsdóttir, varamaður forstöðumanns sendiráðs Íslands í Malaví, voru viðstaddar opnunarathöfnina. Við sama tækifæri var jafnframt „Early Warnings for All“-átakinu ýtt úr vör og ný stefna Veðurstofu Malaví kynnt.
Í heimsókn sinni til Malaví fundaði Jórunn með fulltrúum DCCMS, UNDP og norsku veðurstofunnar til að skipuleggja næstu skref í SOFF-verkefninu. Hópurinn heimsótti einnig eina þeirra veðurstöðva sem fyrirhugað er að endurnýja. Jórunn átti jafnframt fund með fulltrúum sendiráðs Íslands í Malaví þar sem meðal annars var rætt um þann þátt verkefnisins sem snýr að eflingu jafnréttisvitundar innan DCCMS og verkefnisins í heild.
Að sögn Jórunnar hefur samstarf aðila í SOFF-verkefninu gengið afar vel frá undirbúningsstigi þess og hún segist hlakka til að fylgja verkefninu eftir og sjá ávinning þess skila sér á komandi árum.
Um SOFF
SOFF er sjóður á vegum Sameinuðu þjóðanna sem hefur það markmið að tryggja sjálfbæra langtímafjármögnun til að efla veðurathuganakerfi í þróunar- og smáeyþróunarríkjum með stuðningi framlagsríkja. Ísland var einn af stofnaðilum SOFF árið 2022 og situr fulltrúi utanríkisráðuneytisins í stýrinefnd sjóðsins. Samstarf íslenskra stjórnvalda við sjóðinn er í samræmi við áherslu á viðbrögð við loftslagsbreytingum í stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024–2028. Með styrkingu spáa og viðvörunarkerfa auk þess að tryggja stöðugt aðgengi að hágæða veður- og loftslagsgögnum styður SOFF alþjóðlegan almannahag og loftslagsþolið þróunarstarf.

Celeste Saulo, framkvæmdastjóri Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar, og Patricia Wiskes, ráðherra náttúruauðlinda Malaví, hleyptu framkvæmdafasa verkefnisins opinberlega af stað í Blantyre 11. febrúar. Jórunn Harðardóttir frá Veðurstofu Íslands og Erla Hlín Hjálmarsdóttir frá sendiráði Íslands í Malaví voru viðstaddar athöfnina. Mynd/Sameinuðu þjóðirnar




