Deildarmyrkvi á sólu á Íslandi 10. júní
Almyrkvi mun sjást á Íslandi eftir fimm ár
Deildarmyrkvi á sólu mun sjást á Íslandi 10. júní næstkomandi. Í deildarmyrkva fer tunglið fyrir hluta sólarinnar, en ekki verður almyrkvi. Í Reykjavík hefst myrkvinn kl. 09:06 og lýkur kl. 11:33. Hann verður mestur kl. 10:17, en þá skyggir tungl á 69% af þvermáli sólar og veldur 61% myrkvun. Mesta myrkvun á Íslandi verður breytileg eftir landsvæðum, 56-65% og tímasetningu getur skeikað um nokkrar mínútur frá Reykjavík. Skýjafar og veður hafa mikil áhrif á hversu vel myrkvinn sést.
„Þetta verður mesti sólmyrkvi á Íslandi frá því fyrir sex árum, 20. mars 2015, en þá varð 98% myrkvun í Reykjavík og yfir 99% á Austfjörðum, en þá sást almyrkvi á Svalbarða og í Færeyjum“ segir Þórður Arason, sérfræðingur á Veðurstofu Íslands. „Því miður lítur ekki vel út með veðrið á fimmtudaginn og stefnir í rigningu víða um land, en þó er ekki útilokað að það rofi til smástund einhversstaðar“, segir Þórður og minnir á að til að vernda augun er nauðsynlegt að hafa sérstök gleraugu við að skoða sólmyrkva!
Nauðsynlegt er að hafa sérstök sólmyrkvagleraugu við að skoða sólmyrkva, til að vernda augun. (Ljósmynd: Veðurstofan / Þórður Arason).
Þessi myrkvi mun hvergi sjást á jörðinni sem almyrkvi, en mun koma
fram sem hringmyrkvi við sólarupprás í Ontario í Kanada, færist svo hratt í
norður, yfir norðurhluta Grænlands og endar í Síberíu. Við hringmyrkva er
tunglið of langt frá jörðu til að hylja alla sólina og sólin nær að skína
hringinn í kringum tunglið.
Almyrkvi á sólu mun sjást á Íslandi eftir fimm ár
Eftir fimm ár, 12. ágúst 2026 um kl. 17:45, verður fyrsti almyrkvi á sólu á Íslandi síðan 1954, og sá þrettándi frá landnámi. Almyrkvinn mun sjást á öllu vestanverðu landinu og mun vara í 1 mín í Reykjavík, en lengst 2 mín 13 s á Bjargtöngum. Almyrkvi á sólu sást síðast í Reykjavík árið 1433.
Braut almyrkvans 12. ágúst 2026, miðjan er sýnd með rauðri línu og breidd skugga almyrkvans afmarkast af bláu línunum. Almyrkvinn verður lengstur í punkti GE á Breiðafjarðarmiðum, 2 mín 18 s. (Kort: NASA).
Uppfært 11.06.
Þrátt fyrir að veðurspáin liti ekki vel út var samt góður möguleiki á að það yrðu rof í skýjabreiðunni á stöku stað. Það gekk eftir á höfuðborgarsvæðinu og þátt fyrir skýjað veður og skúrir, rofaði stundum til og sást til sólar. Þegar ský gengu fyrir mátti vel horfa á deildarmyrkvann með berum augum.
Deildarmyrkvinn nálægt hámarki séður frá Kópavogi, 10. júní 2021 kl. 10:15. (Ljósmynd: Veðurstofan / Þórður Arason)