Fréttir
13.júlí2022
Mynd tekin 13. júlí síðastliðinn

Aukin rafleiðini í Jökulsá á Sólheimasandi

19.7.2022

Undanfarna daga hefur rafleiðni aukist í Jökulsá á Sólheimasandi og mælist óvenju há miðað við árstíma. Mikið vatn er í ánni og borist hafa nokkrar tilkynningar um brennisteinslykt á svæðinu. Undanfarna daga hafa nokkrir smáskjálftar mælst í Mýrdalsjökli innan vatnasviðs Sólheimajökuls. Þetta er til merkis um að jarðhitavatn sé að leka undan jöklinum en engar vísbendingar eru um frekari vatnavexti. Ferðafólki og ferðaþjónustuaðilum á svæðinu er þó ráðlagt að vera á varðbergi.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica