Fréttir
Starfsmaður Veðurstofunnar á mælapalli. Jökulsá við Upptyppinga. Ljósmynd: Bergur Einarsson.

Alþjóðlegur dagur vatnsins: „Þar sem vatn rennur, vex jafnrétti“

22.3.2026

Alþjóðlegur dagur vatnsins er haldinn 22. mars ár hvert. Að þessu sinni leggja Sameinuðu þjóðirnar áherslu á tengsl vatns og jafnréttis undir slagorðinu „Where water flows, equality grows“, sem má þýða „Þar sem vatn rennur, vex jafnrétti“.

Í tilefni dagsins hefur verið gefin út ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna um stöðu vatnsauðlinda í heiminum. Í henni kemur fram að áhrif vatnsskorts og vatnstengdra hamfara dreifast ekki jafnt og bitna oft harðar á konum og stúlkum, sem víða bera meginábyrgð á öflun og nýtingu vatns.

Skýrslan bendir jafnframt á að loftslagsbreytingar auki tíðni og alvarleika vatnstengdra náttúruváa, svo sem flóða og þurrka. Í slíkum aðstæðum hefur ítrekað komið fram að konur eru stór hluti þeirra sem farast í hamförum, meðal annars vegna félagslegra aðstæðna og mismunandi aðgengis að úrræðum.

Áhersla er lögð á að bæta stjórnun vatnsauðlinda með heildstæðri nálgun þar sem tekið er mið af jafnrétti kynjanna. Slík nálgun getur aukið sjálfbærni og styrkt viðnámsþrótt samfélaga gagnvart loftslagsbreytingum.

Sá þáttur Veðurstofu Íslands sem snýr að vatnafari fjallar um verndun og rannsóknir á vatnsauðlindinni, eðli hennar og skilyrðum til nýtingar. Á þessu sviði er unnið að verkefnum fyrir opinbera aðila, miðlun þekkingar og samstarfsverkefnum á sviði vatnafræða á innlendum og alþjóðlegum vettvangi.

Á Íslandi er aðgengi að hreinu vatni gott og jafnrétti mælist meðal þess sem hæst gerist í heiminum. Sú staða endurspeglar vel það sem bent er á í skýrslunni, að þar sem aðgengi að vatni er tryggt og samfélög eru jöfn, skapast betri skilyrði fyrir velferð og sjálfbæra þróun.

Þótt aðstæður á Íslandi séu góðar í alþjóðlegum samanburði er mikilvægt að fylgjast með þróun og stuðla að sjálfbærri nýtingu vatnsauðlinda í ljósi loftslagsbreytinga.

Skýrslan er gefin út af UNESCO fyrir hönd UN-Water og er ein helsta heimild Sameinuðu þjóðanna um stöðu vatnsmála á heimsvísu.
Lesa skýrsluna á vef UNESCO

Frekari upplýsingar um alþjóðlegan dag vatns má finna hér:
World Water Day – UN-Water

Alþjóðlegir dagar helgaðir jöklum, vatni og veðurfræði

Alþjóðlegur dagur jökla er haldinn 21. mars og er ætlað að vekja athygli á mikilvægi jökla og hraðri rýrnun þeirra. Daginn eftir, 22. mars, er alþjóðlegur dagur vatns og 23. mars er Alþjóðlegi veðurfræðidagurinn, sem Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO), sérstofnun Sameinuðu þjóðanna, stendur fyrir.

Þessir þrír dagar eru haldnir hver á eftir öðrum til að undirstrika tengsl jökla, vatns og veðurfars og mikilvægi þeirra í náttúru og samfélagi.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica