Þingeyri
Hættumat var staðfest af umhverfisráðherra 30. ágúst 2005
Tillögur að hættumati vegna ofanflóða á Þingeyri voru unnar af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Ísafjarðarbæjar. Náttúrufræðistofnun Íslands, Akureyrarsetur, vann að þeim hluta verkefnisins sem varðar hættumat vegna skriðufalla. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.
Vinna við hættumat fyrir Þingeyri hófst árið 2003. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar á opnum borgarafundi 9. mars 2005 og lágu síðan frammi til kynningar í fjórar vikur. Engar athugasemdir bárust.
Matsvinna
- Kristján Ágústsson (verkefnisstjóri), jarðeðlisfræðingur
 - Hörður Þór Sigurðsson, verkfræðingur
 - Halldór G. Pétursson, jarðfræðingur
 - Höskuldur Búi Jónsson, jarðfræðingur
 - Þorsteinn Sæmundsson, jarðfræðingur
 - Oddur Pétursson, snjóathugunarmaður
 - Tómas Jóhannesson, jarðeðlisfræðingur
 - Svanbjörg Helga Haraldsdóttir, jarðeðlisfræðingur
 
Hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar
- Snjólfur Ólafsson (formaður), prófessor í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.
 - Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar..
 - Jóhann Birkir Helgason, bæjartæknifræðingur Ísafjarðarbæjar.
 - Gunnar Guðni Tómasson, aðstoðarframkvæmdastjóri á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf.
 
Skýrslur og kort
Skjöl eru vistuð á pdf-formi. Í fellivalsgluggum er hægt að sækja ýmis skjöl og kort er tengjast hættumatinu.
Hættumatskort (VÍ 2005) (pdf 0,1 Mb)
Mat á hættu vegna ofanflóða á Þingeyri (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar, 2005) (pdf 0,2 Mb)
Hættumat fyrir Þingeyri í Dýrafirði (VÍ greinargerð 04024, 2004) (pdf 0,5 Mb)
Hættumat vegna skriðufalla á Þingeyri (NÍ skýrsla 04003, 2004) (pdf 0,5 Mb)



