Um vefinn
Um hlutverk ytri vefs Veðurstofu Íslands
Ytri vefur Veðurstofu Íslands, vedur.is, miðlar rauntímaupplýsingum, viðvörunum, tilkynningum, gögnum, skýrslum, rannsóknarefni, fréttum, fróðleik og kynningarefni er varðar viðfangsefni stofnunarinnar. Ýmis rannsóknar- og samstarfsverkefni hafa sína eigin undirvefi.
Um öryggishlutverk vefsins
Veðurstofan hefur meðal annars það hlutverk að vera í beinu samstarfi við Almannavarnir Ríkislögreglustjóra vegna náttúruvár, hættuástands og áhættumats í þeim tilgangi að bæta öryggi almennings og eigna. Þessar áherslur er að finna í lögum um stofnunina.
Á vefnum vedur.is eru birtar viðvaranir og upplýsingum miðlað um náttúruvá á hættustund, en það er mikilvægur þáttur í þjónustu stofnunarinnar. Notkun almennings og fagaðila á vefnum eykst sífellt og fólk reiðir sig á að þar séu bestu fáanlegar upplýsingar um hættuástandið hverju sinni.
Það er markmið Veðurstofu Íslands að vefurinn gegni ávallt hlutverki sínu, einnig á miklum álagstímum.