Veðurþáttaspár
Leiðbeiningar um hvernig setja skuli inn ramma fyrir veðurþáttaspár
Á þessari síðu eru leiðbeiningar um hvernig skuli setja inn ramma (iframe) fyrir veðurþáttaspár (sjá einnig i-rammaþjónustu Veðurstofunnar).
Ramminn fyrir veðurþáttaspár lítur út eins og hér sést. Vefstjórar velja hvaða spásvæði skuli birtast. Sjálfgefið tungumál er íslenska en hægt er að breyta því í ensku.
Til að setja þennan ramma inn er eftirfarandi kóði settur inn á viðkomandi síðu þar sem ramminn á að birtast:
<script type="text/javascript" src="http://vedur.is/js/iframe.js"></script> <script type="text/javascript"><!-- VI.ifrm.type = 'wel'; VI.ifrm.area = 101; VI.ifrm.lang = 'is'; VI.ifrm.displayWeather(); //--> </script>
Til að birta önnur svæði er önnur tala gefin upp í 'Vi.ifrm.area'. Svæðanúmerin eru eins og hér segir:
101 = Allt Ísland
111 = Höfuðborgarsvæðið
1 = Faxaflói
2 = Breiðafjörður
3 = Vestfirðir
4 = Strandir og Norðurland vestra
5 = Norðurland eystra
6 = Austurland að Glettingi
7 = Austfirðir
8 = Suðausturland
9 = Suðurland
10 = Miðhálendið
Til að birta rammann á ensku er 'VI.ifrm.lang' breytt á þennan hátt:
VI.ifrm.lang = 'en' ;
Breiddin á þessum ramma er 600px. Hæðin er mismunandi eftir því hvaða landshluti er valinn.
Um Modernus teljarann
Síður sem birta þessa þjónustu mega EKKI vera í Samræmdri vefmælingu hjá Modernus (teljari.is). Athugið þetta á einungis við um viðkomandi síðu, ekki allan vefinn. Þeir vefir sem eru í Samræmdri vefmælingu geta birt þennan ramma ef þeir einungis taka Modernus-teljara-kóðann út af þeim síðum sem birta þennan ramma.
Samkvæmt Modernus er í lagi að bæði iframe-síðan og aðalsíðan (sú sem hýsir iframe-síðuna) séu með Modernus-teljara-kóða, svo fremi að báðar síðurnar séu EKKI í Samræmdri vefmælingu. Fletting á sérhverja vefsíðu í Samræmdri vefmælingu skal, samkvæmt kröfu Modernus, einungis mælast einu sinni.
Vedur.is og þar með þessir rammar eru í Samræmdri vefmælingu. Af því leiðir að þær síður sem birta þessa ramma mega ekki vera í Samræmdri vefmælingu. Þeir vefir sem eru í Samræmdri vefmælingu geta birt þessa ramma ef þeir einungis taka Modernus-teljara-kóðann út af þeim síðum sem birta þessa ramma. Þetta er að sjálfsögðu örlítið óhagræði en oftast reynist einfalt að taka Modernus-teljara-kóðann út af einstökum síðum.
Það þykir eðlilegt að þessir stóru iframe-rammar hljóti talningu á viðkomandi flettingu vegna þess að þetta er megin-efni viðkomandi síðu. Litlir iframe-rammar, sem síðar verða hluti af þessari þjónustu Veðurstofunnar, munu ekki innihalda Modernus-teljara-kóða, þar sem þeir eru hugsaðir sem lítill hluti annarrar síðu.