Laus störf

Sérfræðingur á sviði jarðskjálftarannsókna

Starfið heyrir undir deild jarðskjálfta og jarðhniks sem ber ábyrgð á úrvinnslu, greiningu og rannsóknum á jarðskjálftum og aflögunarferlum í jarðskorpunni. Deildin vinnur úr mæligögnum, þróar úrvinnsluaðferðir og beitir m.a. tölulegum hermunum til að rannsaka þá ferla sem stjórna spennubreytingum og hreyfingum í jarðskorpunni. Enn fremur taka sérfræðingar í deildinni þátt í jarðváratburðum eftir því sem við á, við túlkun og mat á hættu.

Á Veðurstofu Íslands starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fólks við að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins gegn náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga. Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða. Sérfræðingar stofnunarinnar eru leiðandi á sínu sviði og styðja viðbrögð samfélagsins vegna náttúruvár og áhrifa loftslagsbreytinga með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi. Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 170 manns. Auk þess starfa um 50 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér stefnumótun, uppbyggingu og samþættingu jarðskjálftaúrvinnslu, auk þess að leiða innlendar og alþjóðlegar rannsóknir sem styrkja hlutverk Veðurstofunnar í náttúruváeftirliti. Við leitum að framsýnum einstaklingi með brennandi áhuga á að færa jarðváreftirlit á Íslandi inn í framtíðina með nýjustu aðferðum vélanáms og sjálfvirkni, á sama tíma og öflugt gæðaeftirlit er tryggt og áreiðanlegar viðvaranir berast sem allra fyrst.

Helstu verkefni:

  • Byggja upp og viðhalda gæðaeftirliti með úrvinnslu jarðskjálftagagna

  • Sækja um innlenda og alþjóðlega rannsóknarstyrki sem styðja við hlutverk Veðurstofunnar

  • Leiða þróun og innleiðingu nýrrar tækni til að auka sjálfvirkni og efla áreiðanleika og gæði í jarðskjálftaúrvinnslu

  • Þátttaka í viðbragði atburða tengdri jarðvá m.a. við túlkun gagna

  • Þróun rauntíma viðvörunarkerfa

  • Miðla niðurstöðum til notenda og samstarfsaðila, veita ráðgjöf og fræðslu og taka virkan þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi

Hæfniskröfur

  • Doktorsgráða á sviði jarðskjálftafræði

  • Farsæl reynsla og árangur í rannsóknum og öflun rannsóknarstyrkja

  • Víðtæk reynsla af úrvinnslu jarðskjálftabylgjugagna, greiningu jarðskjálftagagna, miðlun niðurstaðna og verkefnastjórnun

  • Ítarleg þekking á jarðvá og skjálftavirkni á Íslandi

  • Hæfni í mannlegum samskiptum, skipulagshæfni og nákvæmni í starfi

  • Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi

  • Reynsla af SeisComP og ObsPy æskileg

  • Framúrskarandi færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli er æskileg

Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Á stofnuninni eru tækifæri til faglegrar þróunar og vinnutími er sveigjanlegur.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Umsókninni skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstyður hæfni sína fyrir starfið.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Jónsdóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: kristinj@vedur.is

Sími: 5226000


Borgar Ævar Axelsson

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: borgar@vedur.is

Sími: 5226000

Sækja um starf



Nýjar fréttir

Tíðarfar í september 2026

Hiti í september var rétt yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Loftþrýstingur var óvenjulágur. Meðalloftþrýstingur hefur aðeins einu sinni mælst lægri í septembermánuði í Reykjavík frá upphafi mælinga. Úrkoma var yfir meðallagi í flestum landshlutum, nema á suðvesturhorninu. Seinni hluti mánaðarins var mjög úrkomusamur, þá sérstaklega á Vestfjörðum, Austfjörðum, Suður- og Suðausturlandi. Eitthvað var um skriðuföll og grjóthrun í þessum landshlutum.


Lesa meira

Nýtt áhættumat vegna öryggis fólks í Grindavík á vefsíðu Grindavíkurbæjar

Niðurstaða fyrsta hluta endurskoðaðs áhættumats vegna öryggis fólks í Grindavík liggur nú fyrir. Matið gildir fyrir byggð svæði í Grindavík innan varnargarða. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fer með gerð og útgáfu áhættumatsins í samstarfi við almannavarnanefnd Grindavíkur. Lesa meira

Staðan á Reykjanesskaga

Hægt landris mælist áfram við Svartsengi. Jarðskjálftavirkni er áfram lítil. Nýtt kvikuhlaup sem gæti endað með eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni er áfram líklegasta sviðsmyndin. Tillit er tekið til sprunguviðgerða innan Grindavíkur í uppfærðu hættumati. Lesa meira

Nýjar vefsíður fyrir skriðuviðvaranir komnar í loftið

Gular skriðuviðvaranir hafa nú verið gefnar út fyrir sex svæði vegna úrkomu. Þær ná til norðanverðra Vestfjarða, Stranda og vestanverðs Húnaflóa, sunnanverðra Austfjarða, Suðausturlands, Suðurlands og innsveita Suðurlands og miðhálendisins. Viðvaranirnar hafa mismunandi gildistíma og aðstæður eru ólíkar eftir svæðum. Á skriðusíðunum má sjá hvar viðvaranir eru í gildi, gildistíma þeirra og nánari upplýsingar um hættuna á hverju svæði. Lesa meira

Nýir snjómælar styrkja vöktun við Norðfjarðarveg

Starfsmenn Veðurstofunnar í Neskaupstað hafa sett upp tvo nýja snjómæla í fjallinu innan við bæinn. Mælarnir eru staðsettir við Bræðslugjár og í Miðstrandargili, sem eru þekktir snjóflóðafarvegir ofan Norðfjarðarvegar. Mælarnir styrkja þannig vöktun á svæðinu og skapa betri grundvöll fyrir ákvarðanir sem varða fólk sem ferðast um veginn eða starfar á svæðinu. Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica