Laus störf

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs

Veðurstofa Íslands gegnir lykilhlutverki í að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins í ört breytilegum heimi. Grunnur þess er skilvirkur rekstur og stöðugar umbætur.

Verðurstofa Íslands leitar að kraftmiklum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra fjármála- og rekstrarsviðs. Fjármála- og rekstrarsvið annast fjármálastjórn, reikningsskil, greiningu og miðlun upplýsinga um fjármál og rekstur. Sviðið veitir stjórnendum stuðning og stuðlar að gagnsæi og vandaðri upplýsingagjöf innan stofnunarinnar og til stjórnvalda. Jafnframt ber sviðið ábyrgð á daglegum rekstri og innri þjónustu Veðurstofunnar, meðal annars fasteignum og starfsaðstöðu, innkaupum, öryggis- og aðgangsmálum, skjalastjórn, móttöku og mötuneyti.

Framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar leiðir starfsemi og þróun fjármála- og rekstrarsviðs og ber ábyrgð á fjármálastjórn, fjárhagsáætlanagerð og eftirfylgni innan Veðurstofunnar.

Við leitum að einstaklingi með ríka leiðtogahæfileika, sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í öflugu stjórnendateymi, takast á við fjölbreytt og samfélagslega mikilvæg verkefni, stuðla að árangri, umbótum og jákvæðum liðsanda. Viðkomandi þarf að hafa metnað til að veita framúrskarandi þjónustu og tryggja ábyrga og skilvirka nýtingu almannafjár.

Áhugi á viðfangsefnum og áskorunum sem tengjast náttúruöflum landsins, loftslagsbreytingum og náttúruvísindum er kostur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á fjármálastjórn, fjárhagsáætlanagerð og eftirfylgni.

  • Ábyrgð á stjórnun og þátttaka í stefnumótun.

  • Fagleg forysta og ábyrgð á mannauði, fjárhag og rekstri sviðsins.

  • Leiða þróun, innleiðingu verkferla og umbóta.

  • Tryggja skilvirka og samþætta þjónustu sviðsins.

  • Stýra samskiptum og samstarfi við stjórnvöld og aðra hagaðila á sviði fjármála og reksturs.

  • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er æskileg.

  • Farsæl reynsla fjármálastjórnun og rekstri, þ.m.t. umgjörð og ferli áætlanagerðar og eftirfylgni.

  • Góð greiningarhæfni og reynsla af framsetningu tölulegra gagna.

  • Reynsla af stjórnun, stefnumótun og innleiðingu breytinga.

  • Leiðtogahæfileikar og mjög góð hæfni í samskiptum og samvinnu.

  • Markmiðasækni, útsjónarsemi, árangursdrift og áhugi á umbótum.

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Á Veðurstofu Íslands starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur sérfræðinga við að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins gegn náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga. Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða. Sérfræðingar stofnunarinnar eru leiðandi á sínu sviði og styðja viðbrögð og upplýsta ákvörðunartöku með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi.

Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 170 manns. Auk þess starfa um 50 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.

Um er að ræða fullt starf og taka laun mið af kjarasamningum ríkisins og viðeigandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 5. október 

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf. Þar skal gerð grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni sem nýtist í starfinu með hliðsjón af hæfniskröfum auglýsingarinnar. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um Veðurstofuna má finna á www.vedur.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Auður Bjarnadóttir

Tölvupóstur: audur@vinnvinn.is

Unnur Ýr Konráðsdóttir

Tölvupóstur: unnur@vinnvinn.is

Sækja um starf 



Nýjar fréttir

Tíðarfar í september 2026

Hiti í september var rétt yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Loftþrýstingur var óvenjulágur. Meðalloftþrýstingur hefur aðeins einu sinni mælst lægri í septembermánuði í Reykjavík frá upphafi mælinga. Úrkoma var yfir meðallagi í flestum landshlutum, nema á suðvesturhorninu. Seinni hluti mánaðarins var mjög úrkomusamur, þá sérstaklega á Vestfjörðum, Austfjörðum, Suður- og Suðausturlandi. Eitthvað var um skriðuföll og grjóthrun í þessum landshlutum.


Lesa meira

Nýtt áhættumat vegna öryggis fólks í Grindavík á vefsíðu Grindavíkurbæjar

Niðurstaða fyrsta hluta endurskoðaðs áhættumats vegna öryggis fólks í Grindavík liggur nú fyrir. Matið gildir fyrir byggð svæði í Grindavík innan varnargarða. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fer með gerð og útgáfu áhættumatsins í samstarfi við almannavarnanefnd Grindavíkur. Lesa meira

Staðan á Reykjanesskaga

Hægt landris mælist áfram við Svartsengi. Jarðskjálftavirkni er áfram lítil. Nýtt kvikuhlaup sem gæti endað með eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni er áfram líklegasta sviðsmyndin. Tillit er tekið til sprunguviðgerða innan Grindavíkur í uppfærðu hættumati. Lesa meira

Nýjar vefsíður fyrir skriðuviðvaranir komnar í loftið

Gular skriðuviðvaranir hafa nú verið gefnar út fyrir sex svæði vegna úrkomu. Þær ná til norðanverðra Vestfjarða, Stranda og vestanverðs Húnaflóa, sunnanverðra Austfjarða, Suðausturlands, Suðurlands og innsveita Suðurlands og miðhálendisins. Viðvaranirnar hafa mismunandi gildistíma og aðstæður eru ólíkar eftir svæðum. Á skriðusíðunum má sjá hvar viðvaranir eru í gildi, gildistíma þeirra og nánari upplýsingar um hættuna á hverju svæði. Lesa meira

Nýir snjómælar styrkja vöktun við Norðfjarðarveg

Starfsmenn Veðurstofunnar í Neskaupstað hafa sett upp tvo nýja snjómæla í fjallinu innan við bæinn. Mælarnir eru staðsettir við Bræðslugjár og í Miðstrandargili, sem eru þekktir snjóflóðafarvegir ofan Norðfjarðarvegar. Mælarnir styrkja þannig vöktun á svæðinu og skapa betri grundvöll fyrir ákvarðanir sem varða fólk sem ferðast um veginn eða starfar á svæðinu. Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica