Tímaraðir fyrir valdar veðurstöðvar
Með tenglunum hér undir má nálgast veðurfarsupplýsingar, þ.e. mánaðar- og ársgildi ýmissa veðurþátta frá árinu 1961. Upplýsingarnar eru útdráttur úr Veðráttunni, riti Veðurstofu Íslands. Töflurnar eru á textaformi til að auðvelda flutning í önnur gagnavinnsluforrit. Nafn hverrar stöðvar í felliglugganum vísar í textaskjal með gögnum fyrir viðkomandi stöð.
Ekki eru sömu veðurþættir mældir/athugaðir á öllum stöðvum. Þegar veðurþátt vantar á stöð er viðkomandi dálkur fylltur með NA (not available). Eins kemur fyrir að veðurþátt sem athuga á vantar og þá er NA sett í reitinn. Taflan hér fyrir neðan lýsir dálkheitum mánaðar- og ársgilda og merkingu þeirra.
Öll meðaltöl eru mánaðar- eða ársmeðaltöl, hiti er mældur í selsíusgráðum (°C), loftþrýstingur í hPa (1 hPa = 1mb), rakastig er hlutfall af hundraði, úrkoma er í millimetrum og vindhraði í m/s.
Mánaðargildi fyrir valdar stöðvar
| Veðurþáttur | Útskýring |
|---|---|
| stod | Númer stöðvar á Veðurstofu Íslands |
| ar | Ár |
| man | Mánuður (1,2,....12, og 13 er ársgildið) |
| t | Meðalhiti |
| tx | Meðalhámarkshiti |
| txx | Hæsti hiti sem mældist í mánuðinum/á árinu |
| txx_dag1 | Dagsetning hæsta hita/mánuður sem hæsti hiti ársins mældist í |
| tn | Meðallágmarkshiti í mánuðinum/á árinu |
| tnn | Lægsti hiti sem mældist í mánuðinum/á árinu |
| tnn_dag1 | Dagsetning lægsta hita/mánuður sem lægsti hiti mældist í |
| rh | Meðalrakastig |
| r | Heildarúrkoma mánaðarins/ársins |
| rx | Mesta sólarhringsúrkoma sem mældist í mánuðinum/árinu (mælt kl. 09 að morgni) |
| rx_dag1 | Dagsetning mestu sólarhringsúrkomu/mánuður með mestu sólarhringsúrkomu |
| p | Meðalloftþrýstingur |
| nh | Meðalskýjahula í áttunduhlutum |
| sun | Fjöldi sólskinsstunda í mánuðinum/á árinu |
| f | Meðalvindhraði |




