Greinar
ský
Netjuský og úrkomuslæður 4. júlí 2012.
1 2
næsta

Úrkomuslæður

Birta Líf Kristinsdóttir 30.7.2012

Einstaka sinnum þegar úrkoma fellur úr skýjum nær hún ekki til jarðar heldur gufar upp á leiðinni.

Þetta fyrirbæri kallast úrkomuslæður (e. virga) og má sjá á meðfylgjandi myndum. Ástæður fyrir uppgufuninni geta verið margvíslegar, t.d. getur lágt rakastig eða hærra hitastig loftsins í lægri hæðum stuðlað að uppgufun. Einnig getur rísandi loft hindrað úrkomuna í að ná til jarðar. Úrkomuslæður eru algengar á svæðum með þurru loftslagi.

Samkvæmt skýjabók Alþjóðaveðurfræði-stofnunarinnar (WMO) myndast úrkomuslæður aðallega út frá maríutásum, netjuskýjum, grábliku, regnþykkni, flákaskýjum, bólstraskýjum eða skúraskýjum.

Á meðfylgjandi myndum má sjá úrkomuslæður út frá netjuskýjum (Ac - altocumulus) en þau eru algeng og myndast í 6.500 til 23.500 feta hæð hér við land.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica