Laus störf

Sérfræðingur í jöklafræði

Veðurstofa Íslands leitar að metnaðarfullum og áhugasömum sérfræðingi til þess að taka þátt í rannsóknum og vöktun á jöklum. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt framtíðarstarf þar sem áhrif loftslagsbreyting á jökla, samspil eldvirkni og jökla og þátttaka í innlendum og erlendum rannsóknarverkefnum eru í forgrunni. Vöktun á jöklum og viðbragð við náttúruvá er einnig mikilvægur hluti af starfinu sem jafnframt hefur beina tengingu við samfélagið.

Sérfræðingurinn mun starfa á þjónustu- og rannsóknasviði en hlutverk þess er að skilgreina, móta, leiða og taka þátt í rannsókna- og þróunarverkefnum meðal annars í samstarfi við systurstofnanir er varðar alla helstu eðlisþætti jarðar. Verkefni sviðsins snúa einnig að almennum grunnrannsóknum og vísindalegri úrvinnslu gagna, líkanagerð, ásamt þróun afurða og aðferðafræði til að bæta þjónustu stofnunarinnar. Verkefni sviðsins tengjast meðal annars veðri, loftslagsbreytingum, ofanflóðum, jarðskjálftum, eldvirkni, jarðskorpuhreyfingum, vatnafari og jöklabúskap.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sérfræðingurinn mun starfa innan deildar loftslags, veðurs, vatns, jökla og hafs, þar sem unnið er m.a. að rannsóknum og vöktun á jöklum. Helstu verkefni sérfræðingsins felast í kortlagningu á yfirborði og hreyfingu jökla, auk þátttöku í mælingum og úrvinnslu á afkomu jökla, bæði með athugunum í felti og fjarkönnun.

Sérfræðingurinn tekur einnig þátt í líkanreikningum og gerð hættumats vegna jökulhlaupa sem eiga upptök sín í jarðhitakötlum eða vegna eldgosa undir jökli, sem og vegna óstöðugra hlíða sem geta fallið í jökullón.

Starfið felur jafnframt í sér úrvinnslu og miðlun gagna til alþjóðlegra stofnana, ráðgjöf og fræðslu, auk virkrar þátttöku í innlendu og alþjóðlegu samstarfi.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í jöklafræði, jarðvísindum, verkfræði eða skyldum greinum sem nýtist í starfi. Doktorspróf er kostur

  • Kunnátta í forritun og reynsla af líkanreikningum

  • Kunnátta í landupplýsingakerfum (LUK)

  • Farsæl reynsla af því að vinna með stór gagnasöfn

  • Þekking á íslenskri náttúru og áhugi á viðfangsefninu

  • Hæfni í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði og faglegur metnaður

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu

  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð í starfi

  • Reynsla af vettvangsvinnu, s.s. útivist og ferðum í óbyggðum

  • Góð tungumálakunnátta og færni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku

Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Á stofnuninni eru tækifæri til faglegrar þróunar og vinnutími er sveigjanlegur.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Umsókninni skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstyður hæfni sína í starfið.

Á Veðurstofu Íslands starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fólks við að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins gegn náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga. Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða. Sérfræðingar stofnunarinnar eru leiðandi á sínu sviði og styðja viðbrögð samfélagsins vegna náttúruvár og áhrifa loftslagsbreytinga með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi. Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 170 manns. Auk þess starfa um 50 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.vedur.is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Tinna Þórarinsdóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: tinna@vedur.is

Sími: 5226000

Borgar Ævar Axelsson

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: borgar@vedur.is

Sími: 5226000

Sækja um starf



Nýjar fréttir

Nýir snjómælar styrkja vöktun við Norðfjarðarveg

Starfsmenn Veðurstofunnar í Neskaupstað hafa sett upp tvo nýja snjómæla í fjallinu innan við bæinn. Mælarnir eru staðsettir við Bræðslugjár og í Miðstrandargili, sem eru þekktir snjóflóðafarvegir ofan Norðfjarðarvegar. Mælarnir styrkja þannig vöktun á svæðinu og skapa betri grundvöll fyrir ákvarðanir sem varða fólk sem ferðast um veginn eða starfar á svæðinu. Lesa meira

Náttúran yfir höfðum okkar

Dagur íslenskrar náttúru var í gær. Af því tilefni beinum við sjónum upp á við, því íslensk náttúra er ekki aðeins landið, jöklarnir, árnar og hafið. Hún er líka síbreytilegur himinninn yfir okkur. Lesa meira

Staðan á Reykjanesskaga

Aflögunarmælingar sýna áfram landris á Svartsengissvæðinu. Á undanförnum þremur mánuðum hefur landris mælst um fimm sentimetrar. Landrisið bendir til þrýstingur er enn að byggjast upp á nokkra km dýpi. Á meðan landris heldur áfram er líklegasta sviðsmyndin áfram að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss. Lesa meira

Mælingar og boranir í Strandartindi á Seyðisfirði

Um og eftir verslunarmannahelgi fóru fram svokallaðar ERT-mælingar í Strandartindi á Seyðisfirði. Um er að ræða sérhæfðar leiðnimælingar sem gefa upplýsingar um aðstæður undir yfirborði. Tilgangur mælinganna er að kanna hvort sífreri sé til staðar í urð sem er í um 700 metra hæð í Strandartindi. Getgátur hafa verið uppi um sífrera á þessu svæði, en þiðnandi sífreri í bröttum hlíðum getur í sumum tilfellum leitt til skriðufalla.

Lesa meira

Tíðarfar í ágúst 2026

Ágústmánuður var tiltölulega kaldur. Það var úrkomusamt á norðan- og vestanverðu landinu en þurrara á suður- og austurhluta landsins. Norðan- og norðvestlægar áttir voru tíðastar í mánuðinum, en vindur var hægur og veður að mestu gott.

Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica