Brotstál snjóflóðs.
Brotstál snjóflóðs 1994 í Kirkjubólshlíð.

Flokkun ofanflóða

Veðurstofa Íslands 2.11.2006

Upplýsingar um ofanflóð eru skráðar á Veðurstofu Íslands. Þar eru, auk tímasetningar og staðsetningar flóðanna, skráðar ýmsar tölulegar upplýsingar um flóðin og athugasemdir um tjón, veður o.fl.

Upplýsingar um ofanflóð eru misítarlegar eftir heimildum sem aðgengilegar eru um flóðin. Þær eru m.a. háðar því hvort flóðin ollu slysum eða tjóni á mannvirkjum, og eftir ýmsum öðrum atriðum, svo sem stærð flóðanna og fjarlægð frá byggð. Öllum flóðum er úthlutað einkvæmu gagnasafnsnúmeri og skráð hvar og hvenær þau féllu og hverrar tegundar þau voru.

Aðrar upplýsingar, svo sem um upptök og stöðvunarstað, ráðast af aðstæðum.

Ofanflóð eru í skráningu Veðurstofunnar flokkuð til eftirfarandi tegunda:

  • Snjóflóð Almennur flokkur fyrir snjóflóð þar sem meira er ekki vitað um tegundina.
  • Þurrt flekahlaup Flóðið byrjar sem fleki og snjórinn er þurr.
  • Vott flekahlaup Flóðið byrjar sem fleki og snjórinn er rakur eða votur.
  • Þurrt lausasnjóflóð Flóðið byrjar í einum punkti og breikkar niður frá upptökunum og snjórinn er þurr.
  • Vott lausasnjóflóð Flóðið byrjar í einum punkti og breikkar niður frá upptökunum og snjórinn er rakur eða votur.
  • Krapaflóð Snjórinn í flóðinu er mettaður af vatni.
  • Kófhlaup Flóðið er létt kóf án þétts kjarna niður við jörðu.
  • Vatnsflóð Vatnsflóð með litlum krapa eða aurframburði. Tegund flóðs er ekki skráð vatnsflóð nema krapaflóð og aurskriða eigi ekki við.
  • Aurskriða Vatnsblönduð skriða af grjóti og öðrum jarðefnum.
  • Grjóthrun Hrun stakra steina úr hlíð.
  • Berghlaup Hrun heillar bergfyllu úr hlíð.


Til baka




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica