Aurskriður - forvarnir
Aurskriður - forvarnir
Af síðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra 10.01.2007 með góðfúslegu leyfi.
Forvarnir
Forðist að vera utandyra
- Haldið ykkur innandyra og farið alls ekki í fjalllendi þar sem hætta er á aurskriðum.
Dvalarstaður öryggisráðstafanir
- Dveljið þeim megin í íbúðinni sem snýr undan fjallshlíðinni. Gluggum og millihurðum skal tryggilega lokað. Setjið hlera fyrir þá glugga sem að fjallinu snúa.
Kjallarar
- Dveljið ekki í kjöllurum húsa nema þeir séu alveg niðurgrafnir og með steyptri loftplötu.
Stöðutilkynningar
- Þeir sem búa eða dvelja afskekkt komi á síma- eða talstöðvasambandi við aðila utan hættusvæðis og láti heyra frá sér reglulega.
Rýming
- Ef lögreglustjóri gefur út fyrirmæli um rýmingu er íbúum skylt að rýma hús sín. Almannavarnir í héraði opna fjöldahjálparstöð og halda skráningu um dvalarstaði fólks þar til því er heimilt að fara til síns heima.