Laus störf

Sérfræðingur í haffræði og líkanreikningum

Veðurstofa Íslands auglýsir eftir sérfræðingi á þjónustu- og rannsóknasvið til þess að taka þátt í uppbyggingu spálíkana fyrir sjávarhæð og tengdum verkefnum. Í boði er spennandi, krefjandi og fjölbreytt framtíðarstarf.

Hlutverk þjónustu- og rannsóknasviðs er að skilgreina, móta, leiða og taka þátt í rannsóknar- og þróunarverkefnum er varðar alla helstu eðlisþætti jarðar. Verkefni sviðsins snúa einnig að almennum grunnrannsóknum og vísindalegri úrvinnslu gagna, líkanagerð, ásamt þróun afurða og aðferðafræði til að bæta þjónustu stofnunarinnar, til viðbótar við að mæta þörfum samfélagsins. Verkefnin sviðsins tengjast m.a. veður- og loftslagsrannsóknum, jökla-, vatna- og haffræði, ofanflóðaverkefnum, jarðskorpuhreyfingum og eldgosum. Jafnframt er rauntímavöktun á veðri og náttúruvá sinnt á sviðinu.

Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 160 manns, þar af rúmlega 100 á þjónustu- og rannsóknasviði, með fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem spannar mörg fræðasvið vísinda og sérfræðiþekkingar. Auk þess starfa um 50 manns við athugana-og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.vedur.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Leiðandi hlutverk í þróun rauntíma sjávarhæðarreikninga og vinnslu sjávarflóðahættumats, sem og upplýsinga til almennings og hagsmunaaðila. Þátttaka í úrvinnslu og greiningu haffræðigagna sem og í stefnumótun á þróun aðferða í vöktun hafíss og sjávarflóða, ásamt skýrslu- og greinaskrifum. Sérfræðingurinn mun taka þátt í samstarfi við innlenda aðila sem sinna rannsóknum og eftirliti á ástandi sjávar á íslenskum hafsvæðum og eftirliti á útbreiðslu hafíss, auk þess að vera virkur í alþjóðlegu samstarfi á sviði haffræði, s.s. á vegum Copernicus áætlunarinnar, norðurslóðarannsókna og fjarkönnun (s.s. EUMETSAT). Starfinu fylgir verkefnisstjórn tilgreindra verkefna.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í haffræði, jarðeðlisfræði, stærðfræði eða skyldum greinum sem nýtast í starfi. Doktorspróf er kostur.

  • Hæfni í mannlegum samskiptum

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu

  • Færni og geta til að miðla niðurstöðum innan teymis og út á við

  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð í starfi

  • Frumkvæði og faglegur metnaður

  • Góð tölvukunnátta, þ.á.m. forritunarkunnátta (Unix/Linux)

  • Góður bakgrunnur í eðlisfræði og stærðfræðigreiningu

  • Góð færni í íslensku og ensku nauðsynleg

  • Kunnátta í norðurlandamálum er kostur

Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um starfið.

Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Tinna Þórarinsdóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: tinna@vedur.is

Sími: 5226000

Borgar Ævar Axelsson

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: borgar@vedur.is

Sími: 5226000

Sækja um starf



Nýjar fréttir

Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi

Landris og kvikusöfnun halda áfram undir Svartsengi. Rúmlega 25 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast saman frá síðasta eldgosi og kvikuhlaup með mögulegu eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni er áfram líklegasta sviðsmyndin.

Lesa meira

Fyrsti hluti af langtímahættumati vegna hraunavár á Reykjanesskaga kominn út

Langtímahættumat vegna hraunavár segir til um hvaða svæði eru möguleg gosupptakasvæði og hvaða svæði gætu verið útsett fyrir hraunflæði út frá gossögu svæðisins. Matinu er ekki ætlað að segja til um hvar og hvenær næsta eldgos verður eða hvort hraun renni á tilteknu svæði á næstu árum. Megin markmið með matinu er að draga úr tjóni með áherslu á innviði og eru niðurstöðurnar mikilvægt innlegg í skipulagningu byggðar og landnýtingar


Lesa meira

Gervihnattamælingar veita nýja innsýn í eðli jökulhlaupa

Grein í Nature Communications varpar nýju ljósi á eðli jökulhlaupa frá Grímsvötnum. Niðurstöðurnar benda til þess að þróun hlaupanna sé talsvert frábrugðin því sem eldri kenningar gerðu ráð fyrir.

Lesa meira

Tíðarfar í mars 2026

Mars var kaldari en að meðallagi undanfarin tíu ár um mestallt land, úrkomusamur, umhleypingasamur og loftþrýstingur lágur.

Töluvert var um að veður og færð yllu vandræðum. Mánuðurinn hófst með stórhríð á Austurlandi þ. 2. með tilheyrandi samfélagsáhrifum og samgöngutruflunum. Flesta daga mánaðarins var einhvers konar veðurviðvörun í gildi einhvers staðar á landinu og þónokkuð var um að snjóflóð féllu í mánuðinum. Mikið var um samgöngutruflanir allan mánuðinn, bæði í lofti og á láði, og höfðu því veður og færð mikil samfélagsáhrif þennan mánuðinn.


Lesa meira

Alþjóðlegur dagur veðurfræðinnar: Áhersla á vöktun og viðvaranir

Í dag, 23. mars, er alþjóðlegur dagur veðurfræðinnar. Þema ársins undirstrikar mikilvægi mælinga og vöktunar veðurs, vatns og loftslags sem grundvöll áreiðanlegra spáa og viðvarana. Veðurstofa Íslands vinnur nú að nýjum skriðuvársíðum sem bæta munu upplýsingagjöf og viðbúnað vegna skriðuhættu.

Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica