Mengun
Fyrir utan að fylgjast með veðri og loftslagi stendur Veðurstofa Íslands að margvíslegri umhverfisvöktun annarri, einkum varðandi mengunarefni sem eru langt að komin. Sýnum er safnað á svokölluðum bakgrunnsstöðvum, fjarri þéttbýli og öðrum staðbundnum uppsprettum mengunar.
Daglegar mælingar á brennisteini í úrkomu, andrúmslofti og svifryki eru kostaðar af Veðurstofunni. Mælingar á þungmálmum og þrávirkum lífrænum efnum í lofti og úrkomu eru kostaðar af alþjóðafé.
Að auki veitir Veðurstofan mörgum alþjóðlegum og innlendum verkefnum brautargengi með aðstöðu til söfnunar og með vinnuframlagi. Þetta eru rannsóknir á gróðurhúsalofttegundum, ósoni, svifryki af hafi og landi, geislun, súrefnissamsætum í úrkomu o.fl.
Nánari upplýsingar má fá í vefflokkunum hér til vinstri. En vöktun annarra stofnana er hér neðar.
Mengunarvöktun annarra stofnana
Veðurstofan vaktar ekki loftgæði í Reykjavík en það gerir Umhverfisstofnun.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur rekur tvær færanlegar loftgæðamælistöðvar (Loftgæðafarstöðvar I og II). Umhverfisstofnun sér um rekstur föstu mælistöðvanna við Grensásveg og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Orkuveita Reykjavíkur rekur mæli í Norðlingaholti þar sem styrkur brennisteinsvetnis er mældur. Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis er með færanlega loftgæðamælistöð á sínu eftirlitssvæði ásamt því að á Hvaleyrarholti er mælistöð vegna álversins.
Náttúrufræðistofnun Íslands annast frjómælingar. Á vef hennar er fræðsla um frjókorn og þar eru niðurstöður frjómælinga (birkifrjó, grasfrjó) ásamt samantekt. Þar er einnig hægt að sækja frjótilkynningu hvers mánaðar í fréttasafnið sem ítarlegt pdf-skjal með línuritum, t.d. júlí 2016.
Mengun frá eldgosum
Holuhraun
Eldgosinu í Holuhrauni lauk 27. febrúar 2015. Margvíslegar upplýsingar vegna eldgossins í mátti finna ýmsum stöðum á vef VÍ veturinn 2014 - 2015, sem og vef Umhverfisstofnunar. Tenglar á helstu síður er vörðuðu mengun:
- Skráning mengunar. Skráningarviðmót þar sem almenningur gat látið vita hvort vart hafði orðið við brennistein eða ekki á viðkomandi svæði. Kortið sýnir nú allar skráningar vetrarins.
- Um loftgæði vegna eldgoss. Á vef Umhverfisstofnunar voru margvíslegar upplýsingar um brennisteinsmengunina.
- Loftgæðamælingar. Á vef Umhverfisstofnunar er enn hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um loftgæði, m.a. niðurstöður frá síritandi mælistöðvum og upplýsingar um staðsetningu þeirra.
- Skólaleiðbeiningar. Umhverfisstofnun gaf ásamt fleiri aðilum út leiðbeiningar vegna fyrirspurna frá leik- og grunnskólum landsins.
Grímsvötn
Þá daga í maí sem gaus í Grímsvötnum árið 2011, voru atburðunum gerð skil á vefnum.
Eyjafjallajökull
Frá vori til hausts árið 2010 var hér á vef Veðurstofunnar haldin dagbók um eldgosið í Eyjafjallajökli. Þann 4. júní, undir færslunni Öskufjúk, eru upplýsingar um tengla á þáverandi mælistöðvar mengunar á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi.