Sýnaraðir
Sýnaraðir
Söfnunarstaðir og efnisþættir
Nýsprottinn fífill
Ljósmynd: Sigurður Thorlacius
Írafoss í Grímsnesi:
- Dagleg sýni af úrkomu; andrúmslofti og svifryki til brennisteins- og seltumælinga
Mælireitur Veðurstofunnar við Bústaðaveg:
- Vikuleg sýni af úrkomu til þungmálmamælinga
- Mánaðarsýni af úrkomu til brennisteins- og seltumælinga
- Mánaðarsýni af úrkomu fyrir Alþjóðakjarnorkumálastofnunina, IAEA, til mælinga á geislavirkni
- Stöðug söfnun á frjókornum sumarhelming ársins fyrir Náttúrufræðistofnun Íslands
Bláberjalyng í vætutíð
Ljósmynd: Guðrún Pálsdóttir
Litla-Skarð í Borgarfirði:
- Mánaðarsýni af úrkomu vegna vistfræðirannsókna í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands og fleiri stofnanir
Mjóanes við Þingvallavatn:
- Mánaðarsýni af úrkomu fyrir Vegagerðina til mælinga á niturákomu vegna mögulegrar vegalagningar um Gjábakka
Stórhöfði í Vestmannaeyjum:
- Vikuleg sýni af úrkomu til þungmálmamælinga
- Hálfsmánaðarsýni af svifryki til þungmálmamælinga
- Hálfsmánaðarsýni af lofti og úrkomu til greininga á þrávirkum lífrænum efnum
Stórhöfði í Vestmannaeyjum - erlendar rannsóknir:
- Símæling á ósoni við jörð
- Augnablikssýni af andrúmslofti á glerkúta vikulega til mælinga á CO2, CH4, CO, H2, SF6, N2O, ásamt samsætunum 13C og 18O í koltvísýringi og samsætunni 13C í metani
- Klukkustundarsöfnun af andrúmslofti á álkúta viku- eða hálfsmánaðarlega vegna sömu efna
- Sólarhringssöfnun af svifryki í hafátt vegna mælinga á lífrænum brennisteini frá þörungum eða sólarhringssöfnun af svifryki úr landátt vegna rannsókna á foki af jökulsöndum
- Þriggja mánaða söfnun án dælingar á þrávirkum lífrænum efnum úr andrúmslofti
- Heils árs söfnun án dælingar á þrávirkum lífrænum efnum úr andrúmslofti
Svartárkot (áður Hveravellir) og Reykjavík (áður Rjúpnahæð):
- Mánaðarsýni af úrkomu fyrir Jarðvísindastofnun vegna samsæturannsókna
Írafoss og Reykjavík (mælireitur VÍ), áður einnig Rjúpnahæð:
- Mánaðarsýni af úrkomu fyrir Geislavarnir ríkisins til mælinga á geislavirkni
Mælireitur Veðurstofu Íslands
Mælireiturinn við Bústaðaveg í Reykjavík. Ljósmynd: Jóhanna M. Thorlacius 18. desember 2007
Veðurstofan vaktar ekki loftgæði í Reykjavík en það gerir Umhverfisstofnun.