Loftslagsskýrsla 2000
Fyrsta vísindanefnd um loftslagsbreytingar var skipuð fyrir aldamót og skilaði hún skýrslu árið 2000 sem hét
Veðurfarsbreytingar og afleiðingar þeirra - Skýrsla vísindanefndar um loftslagsbreytingar
Í skýrslunni var fjallað um nýjustu skýrslu IPCC, fjallað um veðurfarsbreytingar á Íslandi og hafsvæðinu umhverfis Ísland og rætt um líklega þróun næstu áratuga.
Sérstaklega var fjallað um samspil veðurfarsbreytinga og ástands í hafinu við Ísland og gerð grein fyrir hugsanlegri hækkun sjávarborðs, auknum ágangi sjávar, breytingum á vatnafari, jöklum og náttúruvál. Einnig var fjalla um áhrif loftslagsbreytinga á lífríkið og hugsanleg áhrif á nytjastofna í hafi. Loks var fjallað um áhrif á landbúnað og gróðurfar, þjóðfélagslega þætti og mannvirki.
Hér má finna hlekk á skýrsluna.