Reykjanesskagi

Virkni á Reykjanesskaga

Hér má finna safn frétta af virkninni á Reykjanesskaga frá því í byrjun árs 2020 og til dagsins í dag, svör við algengum spurningum og ýmsan fróðleik um virknina á Reykjanesskaga.

Eins má sjá dæmi um gögn úr mælum á Reykjanesskaga sem tengdir eru rauntímavöktunarkerfi Veðurstofunnar.

BO1_07042021

Hófst með skjálftahrinu og landrisi við Þorbjörn 2020

Upphaf þeirrar miklu virkni sem nú mælist á Reykjanesskaga má rekja til þess þegar skjálftahrina og landris mældist við Þorbjörn í lok janúar 2020. Það var strax ljóst að atburðarásin var óvenjuleg fyrir svæðið ef horft var til virkni síðustu áratuga á svæðinu. Mat vísindaráðs almannavarna eftir fyrstu hrinurnar var það að atburðarás eins og var að hefjast á Reykjanesskaga gæti orðið mjög löng og kaflaskipt, þar sem dregur úr virkni tímabundið án þess að henni sé að fullu lokið. Sú hefur orðið raunin. Á síðustu öld mældist veruleg virkni víða á Reykjanesskaganum á árunum 1927-1955 og 1967-1977. En virknin nú er sú mesta sem mælst hefur á Reykjanesskaganum frá upphafi.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica