2011
Hafís í júlí 2011
Nokkrar tilkynningar bárust frá skipum seinni hluta júlímánuðar um ísrönd á siglingarleið, sem ástæða var til að vara við. Þá bárust tvær tilkynningar um borgarís frá skipum, þann 21. á stað 66°40.23‘N og 25°13.34‘V og þann 31. á stað 66°48.6‘N og 023°03.7‘V .
Á Grænlandssundi voru norðaustlægar vindáttir ríkjandi en einnig komu nokkrir dagar með suðvestlægri vindátt.