2011
Hafís í janúar 2011
Landhelgisgæslan fór í eitt eftirlitsflug í mánuðinum.
Hafísinn var þá næst landi á eftirtöldum stöðum: 80 sml VNV af Bjargtöngum, 46 sml NV af Barða, 40 sml NV af Straumnesi og 41 sml N af Kögri. Enga borgarísjaka var að sjá nærri ísröndinni.
Á Grænlandssundi voru norðaustlægar vindáttir ríkjandi lengst af, en í lok mánaðarins komu nokkrir dagar með suðvestanátt.