2007
Hafís í ágúst 2007
Hafís í ágúst 2007
Ein tilkynning barst um hafís langt norður af landinu í ágúst, en þann 23. sigldi skip í gegnum staka ísjaka á 70°N og 19°07V. Landhelgisgæslan fór ekki í könnunarflug í mánuðinum. Á Grænlandssundi var norðaustanátt ríkjandi fyrri hluta mánaðarins og síðustu daga hans, fremur hæg fyrir utan þann 3. Fremur hæg vestlæg átt var dagana 22 til 28. ágúst.