Hafís í janúar 2001

Sigþrúður Ármannsdóttir 9.5.2006

Athugið að myndin stækkar ef smellt er á hana.

Landhelgisgæslan fór fjórum sinnum í ískönnunarflug út af Vestfjörðum í janúar, þ. 2., 18., 22. og 24.

Hafístilkynningar í janúar 2001

Þ. 2. var ísinn næst landi 40 sml. NV frá Deild, 49 sml. NV af Kópanesi og 60 sml. NV af Blakknesi. Þéttleiki íssins var 4-6/10 syðst en minni norðar.

Þ. 18. var ísinn næst landi 44 sml. NV af Straumnesi. Þéttleiki hans var 7-9/10. Nýmyndun var auk þess meðfram röndinni.

Þ. 22. var ísinn næst landi 40 sml. NV af Straumnesi og 10/10 að þéttleika.

Þ. 24. hafði ísinn heldur fjarlægst og var næst landi 65 sml. NV af Barða. Þéttleiki var 7-9/10 og ísdreifar við brúnina.

Engar tilkynningar bárust um borgarís.

Norðaustanátt var ríkjandi í Grænlandssundi í janúar.

 




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica