Hafís í nóvember 2000

Sigþrúður Ármannsdóttir 9.5.2006

Athugið að myndin stækkar ef smellt er á hana.

Landhelgisgæslan fór einu sinni í ískönnunarflug út af Vestfjörðum í mánuðinum, þ. 7.

Haf- og borgarístilkynningar í nóvember 2000

Þá var ísinn næst landi 63 sml. VNV af Straumnesi. Þéttleiki íssins var víðast hvar 7-9/10 en gisnari syðst eða 2-4/10. Ís í myndun var meðfram allri ísröndinni og nokkrir borgarísjakar inni í ísnum.

Þ. 19. barst tilkynning frá skipi um þéttan ís um það bil 30 sml. NV af Rit.

Norðaustanátt var ríkjandi í Grænlandssundi í nóvember.

 




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica