Hafís í október 1999
Athugið að myndin stækkar ef smellt er á hana.
Landhelgisgæslan fór í eitt ískönnunarflug í mánuðinum og var það þ. 22. Þá var ísjaðarinn næst landi 60 sml. NV af Sauðanesi og 68 sml. NV af Blakknesi.
Þéttleikinn var næst brúninni 1-3/10 en 4-6/10 innar.
Ekki bárust aðrar ístilkynningar í október.
Norðaustanátt var tíðust í Grænlandssundi þennan mánuðinn.