Úrkoma í grennd við Eyjafjallajökul
Aska eftir eldgosið 2010
Aska liggur yfir byggðum jafnt sem afréttum í nágrenni Eyjafjallajökuls eftir eldgosið sem hófst þann 14. apríl 2010. Samkvæmt efnagreiningum á nokkrum sýnum er flúor í öskunni en hann er skaðlegur búfé. Flúorinn er vatnsleysanlegur og skolast því úr öskunni við úrkomu. Flúor getur talist bætiefni fyrir gróður ef hann berst í hæfilegu magni niður í jarðveginn.
Veðurstofan vill auðvelda bændum, og öðrum sem hagsmuna hafa að gæta, að fylgjast með úrkomu á þeim svæðum þar sem aska liggur eða þar sem hún getur safnast við öskufjúk.
Hér má fylgjast með úrkomu á nokkrum veðurstöðvum í grennd við Eyjafjallajökul.
Tafla 1. Vikuúrkoma (mm) á mönnuðum veðurstöðvum vorið 2010
vika | Stórhöfði | Skógar | Vatnsskarðshólar | Vík | Snæbýli | Kirkjubæjarklaustur |
14.-17. apríl * | 5,7 | 33,7 | 19,8 | 24,2 | 4,2 | 2,5 |
18. - 24. apríl | 4,4 | 15,5 | 5,8 | 24,4 | 13,1 | 6,0 |
25. apríl - 1. maí | 30,0 | 21,4 | 20,9 | 75,7 | 47,4 | 26,4 |
2. - 8. maí | 6,3 | (1,0) ** | 0,9 | 0,8 | 0,5 | 1,7 |
9. - 15. maí | 18,3 | 19,3 | 16,9 | 26,6 | 29,7 | 20,7 |
16. - 22. maí | 30,3 | 32,2 | 32,6 | 84,0 | 96,9 | 68,9 |
23. - 29. maí | 0,0 | 0,6 | 1,0 | 1,6 | (2,2) ** | 6,4 |
30. maí - 5. júní | 6,5 | 1,2 | 4,4 | 13,7 | 12,9 | 11,3 |
6. - 12. júní | 4,9 | 17,7 | 8,1 | 8,2 | (0,0) | 10,0 |
13. - 18. júní * | (27,2) | (24,6) | (15,3) | (35,8) | (6,0) | (20,8) |
* Fyrsta og síðasta vikan eru ekki heilar. Annars miðast úrkomutölur við vikutíma og skiptir kl. 9 að morgni á laugardögum.
** Smávægileg eyða í mæliröð er auðkennd með sviga ( ).
Tafla 2. Vikuúrkoma (mm) á sjálfvirkum veðurstöðvum vorið 2010
vika | Þykkvibær | Kálfhóll | Sámsstaðir | Surtsey | Vestmanna eyjabær | Önundarhorn |
Kirkjubæjarkl. Stjórnarsandur |
||
14. - 17. apríl * | 9,3 | 18,0 | 16,2 | 3,8 | 6,5 | - | 1,9 | ||
18. - 24. apríl | 3,7 | 4,3 | 4,1 | 1,7 | 5,4 | - | 0,8 | ||
25. apríl - 1. maí | 23,6 | 14,7 | 26,2 | 35,6 | 18,5 | - | 17,4 | ||
2. - 8. maí | 4,7 | 3,0 | 3,8 | 6,5 | 4,2 | - | 1,1 | ||
9. - 15. maí | 15,2 | 16,2 | 18,3 | 13,8 | 20,4 | - | 24,2 | ||
16. - 22. maí | 36,3 | 25,1 | 29,1 | 14,4 | 1,6 | - | 46,9 | ||
23. - 29. maí | 0,1 | -0,5 ** | 0,4 | 0,2 | 0,2 | - | 6,3 | ||
30. maí - 5. júní | 0,4 | -0,2 | 0,5 | 5,6 | 0,1 | (0,2) | 10,5 | ||
6. - 12. júní | 5,2 | 11,1 | 10,0 | 1,5 | 0,2 | 14,7 | 7,1 | ||
13. - 18. júní * | (19,3) | (15,3) | (22,3) | (22,1) | (1,6) | (7,2) | (14,6) |
* Eins og í Töflu 1, eru fyrsta og síðasta vikan ekki heilar og úrkomutölur miðast við vikutíma og skiptir kl. 9 að morgni á laugardögum.
** Á Kálfhóli er vigtunarmælir þar sem uppsöfnuð úrkoma er vigtuð í fötu. Þar getur uppgufun og mælisuð í þurrviðri komið fram sem neikvætt gildi.
Hægt er að skoða sjálfvirkt uppfærðar töflur af vikuúrkomu í grennd við Eyjafjallajökul. Skoða má sólarhringsúrkomu frá veðurstöðvum á Íslandi og einnig úrkomumæliraðir frá fyrrnefndum veðurstöðvum:
Mannaðar veðurskeytastöðvar
Á mönnuðum veðurskeytastöðvum er uppsöfnuð úrkoma athuguð og mæld tvisvar á dag, kl. 9 og 18.
Mannaðar úrkomustöðvar
Á mönnuðum úrkomustöðvum er uppsöfnuð úrkoma athuguð og mæld einu sinni á dag, kl. 9 að morgni. Eins úrkomumælir er á skeyta- og úrkomustöðvum.
- Sámsstaðir í Fljótshlíð (miklar eyður)
- Hólmar í Landeyjum (miklar eyður)
- Skógar undir Eyjafjöllum
- Kerlingardalur (miklar eyður)
- Snæbýli í Skaftártungu
Sjálfvirkar veðurstöðvar með úrkomumæli
Sjálfvirkar veðurstöðvar mæla og skrá úrkomumagn á 10 mín fresti. Allar stöðvarnar eru með sk. vippumæli, nema á Kálfhóli er vigtunarmælir. Hér má að skoða úrkomu á 3 klst fresti.