Fróðleiksmolar
Fróðleiksmoli: dvalartími vatns
Sá tími sem vatn dvelur í straumvötnum á Íslandi er allt að tveimur sólarhringum í lengstu ánum, um 27 dagar í Mývatni en 11 mánuðir í Þingvallavatni. Dvalartími vatns í grunnvatnskerfum og jöklum er frá nokkrum mánuðum upp í aldir og jarðhitavatns í jarðlögum frá nokkrum árum upp í þúsundir ára.