Ísafjörður

Heimasíða Veðurstofu Íslands
Heim > SnjóflóðHættumat > Ísafjörður

Staða:  Staðfest af umhverfisráðherra

Hættumat vegna ofanflóða á Ísafirði og í Hnífsdal var unnið af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Ísafjarðarbæjar. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.

Vinna við hættumat fyrir Ísafjörð og Hnífsdal hófst árið 1998 og vettvangskönnun fór fram þá um sumarið. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar á opnum borgarafundi 19. júní 2002 og lágu síðan frammi til kynningar í fjórar vikur. Skriflegar athugasemdir við hættumatið bárust frá fjórum íbúum. Fjallað var um athugasemdirnar í hættumatsnefnd sem og greinargerð Veðurstofu Íslands um þær. Nefndarmenn voru sammála um að þessar athugasemdir gæfu ekki tilefni til að endurskoða hættumatið. Munnleg ósk barst frá íbúa um að stækka hættumetna svæðið við Skutulsfjörð út fyrir Hnífsdalsveg 27 og vann Veðurstofa Íslands nýtt hættumatskort með þeirri breytingu. Þessi breyting var kynnt með tilkynningu í Bæjarins besta 12. mars 2003 og var hið nýja kort til sýnis á bæjarskrifstofunni á Ísafirði í fjórar vikur án þess að athugasemdir bærust. Nefndin samþykkti á fundi 9. apríl 2003 að leggja þetta hættumatskort fram sem tillögu sína að hættumati fyrir Ísafjörð. Hættumatið var staðfest af umhverfisráðherra 9. maí 2003.

Matsvinna

Hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar

Nauðsynlegt er að hafa Acrobat Reader 5.0 eða nýrri útgáfu til að skoða skýslur og kort. Nýjustu útgáfu er hægt að sækja hér:  getacro.gif (1692 bytes)

Skýrslur og kort

Hættumatskort, Ísafjörður (VÍ 2003)  
Hættumatskort, Hnífsdalur (VÍ 2003)
Mat á hættu vegna ofanflóða í Ísafjarðarbæ (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar, 2002)
Mat á hættu vegna ofanflóða í Ísafjarðarbæ. Greinargerð með hættumatskorti (hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar, 2003) 

Hazard zoning for Ísafjörður and Hnífsdalur - Technical report (VÍ greinargerð 02020, 2002)

 

Results of the 2D avalanche model SAMOS for Ísafjörður and Hnífsdalur (VÍ greinargerð 02018, 2002)

 

Samos powerpoint files

 

Veður í aðdraganda snjóflóðahrina á norðanverðum Vestfjörðum (VÍ greinargerð 02019, 2002)

 

Snjóflóð á Ísafirði og í Hnífsdal (VÍ greinargerð 03011, 2003)

 

Framlenging hættumats vegna ofanflóða á Ísafirði til norðausturs út fyrir Hnífsdalsveg 27 (VÍ minnisblað ÚR-TóJ-2003-03)

Uppfært: 01.06.2005     Fyrirspurnir og athugasemdir: hmat @ vedur.is