Suðvestan 3-10 m/s og lítilsháttar skúrir, en bjartviðri um landið austanvert. Vaxandi sunnanátt í fyrramálið og dálítil væta, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Sunnan og suðaustan 15-25 m/s eftir hádegi á morgun með talsverðri rigningu, hvassast vestantil, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hægari vestantil seint annað kvöld. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast fyrir austan.
Spá gerð 16.10.2026 15:16
Spáð er sunnan- og suðaustanstormi eða -roki á vestanverðu landinu á morgun. Einnig má búast við suðvestanstormi víða um land á sunnudag. Lausamunir geta fokið og valdið tjóni. Ökumenn hvattir til að aka varlega, einkum ef ökutækin eru viðkvæm fyrir vindum.
Veðurviðvaranir eru í gildi fyrir helgina.
Skrifað af vakthafandi veðurfræðingi 16.10.2026 15:16
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
| Stærð | Tími | Gæði | Staður |
|---|---|---|---|
| 3,0 | 16. okt. 03:45:06 | Yfirfarinn | 106,5 km VNV af Kolbeinsey |
| 1,9 | 16. okt. 11:03:10 | Yfirfarinn | 4,0 km N af Hábungu |
| 1,8 | 14. okt. 18:45:03 | Yfirfarinn | 16,5 km N af Skjaldbreið |
| 1,6 | 14. okt. 20:16:19 | Yfirfarinn | 2,7 km V af Geirfugladrangi á Rneshr. |
| 1,5 | 16. okt. 03:55:04 | Yfirfarinn | 7,2 km VNV af Reykjanestá |
| 1,4 | 16. okt. 03:07:17 | Yfirfarinn | 6,6 km VNV af Reykjanestá |
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
| Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
|---|
Vegna bilunar höfum við þurft að slökkva á þjónustunni sem birtir gögn frá vatnamælistöðvum á kortinu. Í staðinn er hægt að nálgast gögnin í Rauntímavöktunarkerfi.
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 15. okt. 02:50
Snjóflóðaspár birtast nú eingöngu í nýju vefumhverfi Veðurstofunnar:
Fréttir frá skriðuvakt Veðurstofunnar birtast á nýju vefsvæði fyrir skriðuviðvaranir á gottvedur.is
Lægsti loftþrýstingur sem mælst hefur á Íslandi í október mældist á Fagurhólsmýri í óveðrinu 14. október, 934,6 hPa. Mikill vindur, sjávarflóð og talsverð úrkoma fylgdu lægðinni og tjón varð meðal annars á Siglufirði.
Lesa meira
Djúp lægð nálgast landið í nótt með austan stormi og talsverðri úrkomu í fyrramálið. Síðdegis gengur í norðan stórhríð norðvestanlands sem færist austur um nóttina. Veðrið gengur niður á fimmtudag. Fylgist með veðurviðvörunum.
Lesa meiraHiti í september var rétt yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Loftþrýstingur var óvenjulágur. Meðalloftþrýstingur hefur aðeins einu sinni mælst lægri í septembermánuði í Reykjavík frá upphafi mælinga. Úrkoma var yfir meðallagi í flestum landshlutum, nema á suðvesturhorninu. Seinni hluti mánaðarins var mjög úrkomusamur, þá sérstaklega á Vestfjörðum, Austfjörðum, Suður- og Suðausturlandi. Eitthvað var um skriðuföll og grjóthrun í þessum landshlutum.