Þingeyri |
![]() |
Heim > Snjóflóð > Hættumat > Þingeyri |
Staða: Staðfest af umhverfisráðherra
Tillögur að hættumati vegna ofanflóða á Þingeyri voru unnar af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Ísafjarðarbæjar. Náttúrufræðistofnun Íslands, Akureyrarsetur, vann að þeim hluta verkefnisins sem varðar hættumat vegna skriðufalla. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.
Vinna við hættumat fyrir Þingeyri hófst árið 2003. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar á opnum borgarafundi 9. mars 2005 og lágu síðan frammi til kynningar í fjórar vikur. Engar athugasemdir bárust. Hættumatið var staðfest af umhverfisráðherra 30. ágúst 2005.
Matsvinna
Hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar
Nauðsynlegt er að hafa Acrobat Reader 5.0 eða nýrri útgáfu til að
skoða skýslur og kort. Nýjustu útgáfu er hægt að sækja hér:
Skýrslur og kort
Uppfært: 04.11.2005 Fyrirspurnir og athugasemdir: hmat @ vedur.is